Mál málanna í byrjun vikunnar eru félagaskipti. Allir þeir sem ætla að spila fyrir hönd Snartar í deildarbikarnum sem hefst á föstudaginn, þurfa að hafa félagaskipti nú í byrjun vikunnar. Þeir sem ekki hafa fengið eyðublað, geta prentað það út af ksi.is. Undirskrift þarf frá forsvarsmanni Snartar og forsvarsmanni þess félags sem þið lékuð með síðast.
Að gefnu tilefni vil ég árétta að þeir sem telja sig ekki vera skráða í neitt félag, þurfa engu að síður að hafa félagaskipti yfir í Snört, ætli þeir að spila! Að öðrum kosti verður okkur dæmdur 3-0 ósigur, auk sektar. Hafið samband við KSÍ ef þið finnið ykkur ekki í gagnagrunninum. Það kostar eitt símtal.
Hver og einn verður að taka ábyrgð á eigin félagaskiptum en við viljum að allir verði komnir með leikheimild með Snerti á miðvikudag. Þetta þarf því að gerast í dag eða á morgun, nema sérstakar aðstæður komi upp.
Hringið í mig, 6613901, Atla 8612817 eða Viktor 8257953 ef þið hafið einhverjar spurningar.
Félagaskiptin kosta 1500 krónur á mann, sem er eins og 10 lítrar af bensíni.
Kv. Baldur
Þessir (af okkur) eru nú þegar skráðir í Snört:
Danni
Baldur
Atli
Kiddi
Ottó
Snævar
Skúli
+ bræðurnir fögru Gæi og Jónsi sem koma vonandi að austan og verður vel tekið af okkar hópi.
Gústi
Bjartmar
Hjörvar
Helgi Kr
Hrói
Óli Þór
Viktor
Freyr
Búinn að borga eins og umsamið var að yrði gert um mánaðarmótin.
Hvernig er þetta með þessa “Kópaskersmenn” ætla þeir að vera í Hvöt alla sína tíð????
Annars sá ég að Óli Þór er kominn yfir í Snört
Ég kem suður um helgina býst ég við og það kemur í ljós hvort ég nái leiknum…vona það..enda ekkert skemmtilegra enn að öskra sig hása á Snartar leik.
Fæ settið í vikunni, það verður gaman að sjá menn í ,,nýja” Snartarsettinu…….
Koma svo strákar!!!!!!
afhverju er ég ekki kominn á lista yfir þá sem eru búnir að borga og afhverju er ekki kominn mynd af mér þar sem nafnið mitt er ekki komið. :0)
Af hverju er lífið svona ömurlegt?
Af hverju mætti ég ekki í tíma?
Og afhverju er Snævar að væla..dadada..Deo…deo..
Sævar..meina ég…dada
og af hverju kíkið þið ekki á síðuna mína og sjáið Steven Gerrard í hinni hliðinni bjammi.com
Sumir myndast bara illa Sævar minn!!
Búinn að borga……jú víst Skúli ég er búinn að borga
Ég skal alveg taka þig trúanlegan Hrói minn. Þú ert eitthvað að mildast með árunum og börnunum
http://www.ksi.is/mot/felagaskipti/?FelagUt=%25&dFra-dd=25&dFra-mm=03&dFra-yy=2008&kyn=%25&FelagInn=138401&dTil-dd=01&dTil-mm=04&dTil-yy=2008
Tökum þessa til fyrirmyndar!!!!!!!!!!!!
félagaskiptaglugginn fer fjörlega af stað hjá okkur…….. nú er hægt að setjast niður og velja lið
Búinn að borga, og einnig kominn í Snört.
prufa
Búinn að borga félagaskiptin.
Talandi um stuld!!!!!!!!
En samt gott gabb……
http://www.vikingur.net/web/?page=news_story&id=1436
En hvað með létta æfingu og pott á morgun???
Ég styð pott og létta æfingu. Ég tala við Danna í dag og set út tilkynningu í kjölfarið.