Sæli drengir.
Ég vildi bara fá það á hreint hvort að það sé leikur á morgun gegn Cozzamara. Það væri gott að fá það á hreint sem fyrst, svo að maður geti notað daginn í eitthvað annað en að bíða eftir því hvort að það verði leikur. Hver er það sem er að koma þessum leik á?
Endilega kommentið um stöðu mála.
kv.
Bjammi (bloggið opið á ný bjammi.com )
Það er sumsé leikur kl 14:00 á KR velli mánudaginn 12. maí. Þeir sem geta, endilega látið sjá ykkur.
Veit ekkert hvort þeir eiga þennan tíma, mér skilst á Baldri að þeir spili þarna þangað til þeir eru reknir af vellinum, sem gerist oftast.
Ekki vera að stressa ykkur of mikið yfir þessu. Bara þeir sem eru í gírnum til að spila smá fótbolta á frídegi látið sjá ykkur. Best væri þó ef við næðum a.m.k. í 11 manns, leiðinlegra að þurfa að fá lánaða menn.
Þeir sem eru búnir að gefa grænt:
Skúli,
Hjörvar,
Ottó,
Gústi,
Bjammi,
Ásgeir,
Haffi,
Stefnir,
Kobbi,
Víðir,
kannski Baldur
Sjáumst þarna uppfrá seinna í dag
Kv. Hjörvar
Ég hvíli í dag
Er veikur, mæti ekki.
Sælir félagar.
Vil hvetja alla til að kíkja á úrslitin í fantasy premiere leiknum okkar. Vorum við ekki búnir að ákveða einhver svakalega verðlaun:)
Ég er meiddur
Hvað með alla nýju mennina Bjammi? Geta þeir ekki mætt?
Ég er með vestin hér hjá mér. Spurning hvort einhver geti sótt þau. Þau verða tilbúin kl. 13.15.
kv. Vilhj.
ég kemst því miður ekki
Verðum við ekki að ákveða okkur. Verður leikur eða ekki. Endilega kommenta svo að menn fari ekki í fýluferði.
kemst ekki
viktor kemst ekki
Ég kem
ég gaf grænt ljós á þetta á föstudaginn en átti þá von á því að leikurinn yrði um kvöldið. Er staddur í Keflavík núna og kemst því ekki í leikinn. En Njörður ætlar að mæta…