Sælir drengir.
Það er verið að bjóða okkur í leik á fimmtudaginn kl 20:00 á Hvolsvelli gegn KFR (knattspyrnufélagi Rangæinga) en þetta lið leikur í 3.deild í A-riðli. Leikið yrði á grasvelli og búningaaðstaða er til staðar, við þyftum að leggja af stað ekki seinna en 18:30 úr bænum ef við komumst í þetta. Það væri gaman að skella sér í smá bíltúr 100km og taka einn leik svona rétt fyrir mót með vel mannað lið. Endilega setjið í komment hvort þið séuð menn eða mýs.
kv.
Bjammi (sem verður monandi maður, því ég á að vinna á þessum tíma)
http://www.liverpool.is/?cat=1&view=newsone&nid=11375
ekki vissi ég að Stefnir væri svona mikill Liverpool maður
Þetta lýst mér ákaflega vel á. Að því gefnu að forföll verði ekki mikið. Þetta gæti hrist hópinn saman og verið hörku leikur. Það yrði heldur ekki ónýtt að spila á alvöru grasi loksins !
Vonandi getum við kýlt á þetta !!
Ég mæti, ef af verður.
Ég er til af því gefnu að ég verði orðinn nógu góður í náranum…………..
Það er ansi hæpið að ég geti komið. Skil á lokaverkefninu eru á föstudaginn.
En ef vel gengur fram að þessu þá er aldrei að vita, mér líst allavega vel á að skreppa útá land og ekki er verra að fá að sprikkla í grasinu.
Mér lýst vel á þetta. Ég mæti.
Ég reikna ekki með að komast í þessa ferð en finnst þetta vera frábær hugmynd til að enda undirbúningstímabilið og þétta hópinn.
Er ekki annars æfing annað kvöld klukkan 9????
Ég er til.
Ég kemst ekki
FRAM - HK á sama tíma
Atli!!!
Hanna verður bara að fara að hætta að vesenast í náranum á þér. þetta gengur ekki
Er til ef við verðum fleiri en 11
Ég er til
Ég kemst ekki
Vonandi kemst, þarf aðeins að taka púlsinn á þessu öllu saman.
Gott að vera búnir að endurheimta óla aftur
kemst ekki
Ég kemst að öllu óbreyttu.
Kemst ekki
ég er til í þetta!!´Hvað segir þú Óskar um að mæta líka, þetta er í næsta nágrenni
Ég get komið með. Náum við 11?
kemst ekki vegna vinnu
Ég kemst.
Búið að blása þetta af.