Jæja drengir þá er nýtt boltasumar að ganga í garð og mætum við til leiks með töluvert breyttan hóp en höfum sennilega aldrei verið jafn fallegir, og vil ég bjóða nýja leikmenn velkomna í hópinn.
Fyrsti leikurinn okkar er á morgun mánudag klukkan 19.30 í fagralundi og eru mótherjar okkar Fc Ice.
Ég verð að viðurkenna að ég veit ekki mikið um þetta lið en þeir stóð sig vel í C-riðlinum í fyrra. Nú er bara að mæta graðir, held að við höfum einu sinni mætt þeim og þá töpuðum við 3-1 leiðréttið mig ef þetta er vitlaust.
Við mætum ekki seinna en klukkan 19 helst 45 mín fyrir leik og tökum smá upphitun og berjum hvorn annan í gírinn, svo þarf líka smá tíma fyrir olíu og gel.
Leikmannalistinn hefur verið uppfærður og eru þar þeir sem eru búnir að borga og eru gjaldgengir í fyrsta leik, búningarnir fyrir newmens koma í næstu viku þannig að aukabúningar eru vel þegnir.
Þá er bara að skrá sig til leiks, skráið líka nr. á búnigunum ykkar fyrir leikskýrsluna.
hverjir komast?????
Annað mál ……..Liðstjórinn
Hreyfing hefur komist á liðstjóramálin og eru viðræður hafnar við Atla Svein um að stýra skútunni á meðan hann jafnar sig á nárameiðslum en hann verður frá í einhvern tíma ( óstaðfestar fréttir eru þær að hann hafi verið að reyna stellingu sem kallast víst splittarinn og held ég að nafnið segji allt ),
.jpg)
hann hefur fína reynslu en síðustu sumur hefur kallinn stýrt hinu stórkostlega liði Snerti frá Kópaskeri í 3.deild.
Mín hugmynd er að hann og Eyjólfur taki þetta verk saman en ég á svo sem eftir að tala við Eyjólf, Skúli tók vel í hugmyndina spurning hvað bleikum finnst um þessar fréttir, er viss um að Kiddi verði smeikur um að Jollinn skipti honum ört útaf
Áfram bleikir
Ég mæti, er með númerið 5
Mæti
Tek það aftur fram að ég vill fá nr á treyjunum
bjammi mæti.
nr 11
Eg maeti,
numer 9 ef tad er laust annars bara 0 eda e-h
ég mæti
er nr 8
og líst ágætlega á liðstjóraskipan
Ég mæti nr. 14
Atli og jolli flottir
Ég mæti nr. 17
Mæti nr 99 held ég. Rictherinn. Hjörvar tekur þú ekki treyjuna og buxurnar “mínar” með þér?
Ég kemst því miður ekki í leikinn því ég verð í grindavík á sama tíma en ég er númer:4 líst vel að þá félaga verða vonandi betri í þessu en pes:-)hehehehehe
mæti - 23 er talan…..
lýst vel á ferguson og Queros….
Mæti og er nr 12.
Líst vel á liðstjóramálin.
Mætum endilega 45 mín fyrir leik og hitum upp og spjöllum saman.
Veit einhver hvort við komumst í klefa?
Villi mætir. Er netlaus og búningslaus.
Ég mæti og er með happatöluna 13. Líst vel á liðstjórana.
jollinn bist undan því að taka að sér liðstjórann þannig að við verðum að sjá hvernig samningar við Atla takast, búinn að bjóða kallinum í mat og viðræður
Er nr. 2
Ég er að þjálfa á sama tíma og kemst því að öllum líkindum ekki.. En ég er númer SEX
Liðstjórarnir hljóma mjög vel
mæti nr.16
mæti er númer 28. á líka aukatreyju sem er númer 25 ef einhverjum vantar
Samningar náðust við Atla og hann kemur á morgun og verður liðstjóri.
Stefnir taktu 25 með þér.