Kjartan stimplaði sig svo sannarlega inn í liðið okkar í kvöld með glæsilegri frammistöðu. Liðið hikstaði í byrjun leiks en náði sér svo á strik. Eftir ótrúlegt mark Kjartans var sigurinn í raun aldrei í hættu. Við yfirspiluðum Drekann, sérstaklega í seinni hálfleik og menn börðst um hvern einasta lausa bolta. Það skilaði okkur verðskulduðum sigri:

Byrjunarliðið
Byrjunarliðið var þannig skipað að Ottó og Haffi voru bakverðir. Hjörvar og Víðir miðverðir. Andri, Kjartan og Ásgeir voru á miðjunni og Kiddi auðvitað frammi. Á bekknum sátu klárir; Danni, Finnur og Hemmi. Sævar meiddist í upphitun en stjórnaði skiptingum af myndarskap.
Spennustigið hátt
Menn virtust frekar taugastrekktir á fyrstu mínútunum en á þeim fengu Dragon tvær til þrjár hættulegasr sóknir, sem hefðu getað orðið að mörkum. Sem betur fer stóð vörnin það af sér. Daníel kom inn eftir um korters leik og með fullri virðingu fyrir öðrum leikmönnum skilaði innkoma hans sér í meiri yfirvegun og betra spili. Við tókum yfirhöndina í leiknum og útfærðum sóknir okkar vel, en í fyrri hálfleik lékum við á móti vindi.
Þrumufleygur Kjartans
Það var töluvert liðið á hálfleikinn þegar Kjartan fékk boltann á miðjunni. Hann lék á eina þrjá varnarmenn og gerði sér svo lítið fyrir og þrumaði boltanum af 30 metra færi í samskeytin fjær. Stórkostlegt og afar mikilvægt mark. Glæsilegt einstaklingsframtak. Þrátt fyrir efnilegar sóknir í fyrri hálfleik urðu mörkin ekki fleiri.
Frábær síðari hálfleikur
Í síðari hálfleik spiluðum við undan vindi. Við færðum liðið framar og pressuðum þá upp allan völl. Það gekk framar vonum enda fór leikurinn á löngum köflum fram á þeirra vallarhelmingi. Raunar komust þeir vart yfir miðju bróðurpart síðari hálfleiks. Okkur gekk samt sem áður erfiðlega að skapa okkur dauðafæri. Við vorum duglegir að skjóta fyrir utan. Andri átti þrumufleyg frá miðjum vallarhelmingi sem stefndi í bláhornið en góður markvörður þeirra varði meistaralega. Finnur átti skömmu síðar ótrúlegt skot af enn lengra færi sem small í samskeytunum. Þá átti Kiddi eitt eða tvö ágæt færi sem fóru forgörðum.
Sigurinn tryggður
Síðustu tíu mínúturnar slökuðum við á pressunni enda hafði hún tekið sinn toll. Þeir uppskáru einar tvær hættulegar skyndisóknir sem Víðir og Hjörvar stoppuðu á mikilvægum augnarblikum. Í kjölfar einnar þeirra svöruðum við með langri sendingu fram á Kidda. Eftir baráttu við varnarmann var hann felldur í teignum og fékk víti. Úr því skoraði hann örugglega og verðskuldaður sigur í höfn.
Yfirvegað spil
Þessi leikur var allt annar en sá síðasti. Menn voru afar duglegir að hlaupa gerðu það rétt. Við héldum boltanum niðri og það skilaði okkur í mun öruggari leik. Miðjan var afar traust og átti alla skallabolta. Gústi leysti allt sem á hann kom. Víðir átti stórleik í vörninni og stöðvaði margar sóknir þeirra í fæðingu. Þeir Hjörvar voru mjög öruggir saman. Miðjan vann virkilega vel og Kjartan gaf okkur nýja vídd í sóknina. Þá voru útherjarnir góðir og sóknir okkar voru hnitmiðaðar. Þeir sem komu af bekknum voru klárir í slaginn en Hemmi stóð sig sérlega vel í sínum fyrsta leik.
Maður leiksins
Það skiluðu allir sínu í kvöld en ég ætla að venja mig á það að velja mann leiksins í leikjum sumarsins. Það eru margir tilnefndir að þessu sinni en ég ætla að leyfa mér að velja Víði mann leiksins. Hann steig ekki feilspor í kvöld og las leikinn eins og opið DV.
Æfing á miðvikudag
Ég vona að allir þeir sem spiluðu í kvöld sjái sér fært að æfa í vikunni. Verður ekki æfing á miðvikudag? Við þurfum á því að halda að æfa saman sem lið. Sérstaklega er mikilvægt að læra inn á nýja menn.
Hér eru nokkrar myndir sem ég tók á meðan leiknum stóð. Birtuskilyrði voru afleit og því myndirnar meira og minna hreyfðar. Læt þær samt flakka nokkrar:
Baneitraður vinstri fótur

Kobbi í kröppum dansi:

Hendi?

Finnur átti þrumuskot af 40 metrum sem hafnaði í samskeytunum. Hann átti
líka þessa aukaspyrnu.

Gústi var sem kóngur í ríki sínu í markinu.

Sævar var með allt undir control. Hér fer gefur hann góð ráð
fyrir seinni hálfleikinn.

Kiddi innsiglaði sigurinn með marki úr víti undir lokin:

Að lokum nokkrar afar fallegar andlitsmyndir. Það lekur ekki af Frey lýsið.

Finnur stóð vörðinn í hægri bakverði. Var nálægt því að skora:

Ætlaði að mynda Andra þegar Gústi kom askvaðandi. Útkoman er skemmtileg:

Kjartan setti mark sitt á leikinn. Var þreyttur í leikslok:

Víðir átti stórleik, bæði í leiknum og fyrir framan myndavélina:

Horfðu til himins. Kobbi dreyminn á svip:

Það rigndi upp í nefið á Ottó eftir að hann komst nálægt því að skora.
Ég gerði þér þann greiða, Ottó, að photoshopa burt undirhökuna að þessu sinni.

Læt þetta nægja að sinni og þakka fyrir mig.
Minni á æfingu á miðvikudag klukkan 21. Takið tímann frá !!!!!!!!!!!!
Kv. Baldur
Takk fyrir leikinn í gær strákar. Við vorum FALLEGIR í gær!!
Verð að vera sammála Baldri, Víðir var magnaður, en ekki má taka það frá Hjörvari og Gústa að þeir stóðu sig mjög vel!!!
Gaman var að sjá hversu nýju mennirnir eru smella inn í þennan sambabolta!!!!
Glæsilegt drengir, nú er bara að halda þessari sigurgöngu áfram.
Ég skal ath með fagralund á miðvikudag
Ég mæti á miðvikudag sama hvar það verður
Ég mæti á miðvikudag
Mæti á miðvikudag
kemst ekki á miðvikudag, það er landsleikur……
mæti á miðvikudag
Ólíkt Kidda gef ég ekki kost á mér í landsliðið.
Kemst ekki á miðvikudaginn. Systir mín yrði ansi fúl ef ég mætti ekki á útskriftartónleikana hennar.
Ég mæti á miðvikudag. Hvar verður æfingin ?
ég er því miður enn meiddur
vonandi klár fyrir næstu æfingu!!
Til lukku með glæsilegan sigur á fallegum velli í Fagralundi. Þetta lið er hrottalega glæsilegt..;)
Það er rétt hjá þér Óli, og maður sér það betur þegar maður rennir yfir myndirnar, þetta er alveg ofboðslega myndarlegt lið!
Glaesilegt piltar, anaegdur med ykkur!
Eg kem aftur ur solinni brunn (eda raudur) og gradur 3. jun og hlakka til ad spila naesta leik.
Mæti
Ég og Finnur mætum báðir.
Æfingin er í Fagralundi klukkan 21
Það er nú allt annað að lesa umfjöllun um leikina þegar svona fallegar myndir fylgja með. Það er náttúrulega bara hættulegt og bannað börnum hvað Metróliðið er glæsilegt lið og þó það vanti menn eins og Ítalska folann frá Kópaskeri, Spænska dverginn frá Seltjarnarnesinu og Mexikanska drykkjuhundinn úr Keflavík.
Til hamingju með sigurinn!!
mæti 21:10
Verð í dalnum að horfa á kidda tækla Weilsarana