Jæja drengir þá er komið að leik.
Leikdagur: Miðvikudagur 4.júní
Tími: 20.30
Völlur: Fjölnisvöllur við Egilsshöll
Mótherjar: Tlc
TLC hafa ekkert leikið í ár, en þeir sátu hjá í fyrstu umferð í B-riðli og bikarleikur þeirra frestaðist þannig að þetta verður fyrsti leikur þeirra í ár. Þeir eru með gott lið og hafa verið að ná góðum árangri síðustu ár. Það er ljóst að við verðum að vera með okkar sterkasta lið á morgun og verðum að ná að gíra okkur upp og mæta dýrvitlausir til leiks. Koma svo fjölmennum á þennan stórleik……
Veður: www.vedur.is
Hverjir komast:
Hrói
Ásgeir aka Massinn
Njörður
Kiddi
Víðir
Skúli ( aðstoðarliðstjóri )
Ottó
Gústi
Finnur
Kobbi
Freyr
Viktor
Hjörvar
Haffi
Sævar ( liðsstjórn )
Raggi
Andri
Danni
Stebbi
Hemmi
Villi
Þetta er rosaleg mæting, það verður auðvelt verk fyrir liðstjóra að stýra skútunni í kvöld, 2 menn um hverja stöðu ![]()
Menn auðvitað mættir lágmark hálftíma fyrir leik.
Minni menn á EM-pottinn, giska á hverjir verða meistarar og leggja þannig undir eina kippu sem sigurvegari/ar fá.
Einnig var hugmynd hjá Hjörvari að vera með tippleik í hverri umferð á EM og menn borga 200-300kr og kassi í verðlaun eftir hverja umferð, hvernig líst mönum á það???
Síðast en ekki síst þá er ég búinn að taka saman smá umfjöllun um liðin í A-riðli EM á síðunni minni http://www.jhj.blogcentral.is eða bara Jónas Hróar hér til hliðar, ef að menn vilja kynast liðunum betur og vera með í smá pælingum um keppnia.
B-riðillinn verður tekinn í kvöld.
Kv. Ciro
Ég mæti
Ég mæti í leikinn. Portúgal verður Evrópumeistari.
Ég kem í leikinn. Get tekið það að mér að vera liðsstjóri í þessum leik. Ég átta mig líka á því að þær verða ekki margar mínúturnar sem ég spila í þessum leik
og sætti mig við það…. Held að það sé ljóst að í þessum leik verður sterkasta liðið látið spila nema leikurinn sé unninn eða tapaður… Eru menn ekki sáttir við það??
Sammála eigandanum, styð að hann og Sævar stýri skútunni
Mæti og sammála….
Eigum við að reyna að dofla Stebba?????????
Mæti
Mæti.
Sammála, sterkasta liðið.
En leikurinn mun einungis ráðast á fagmannlegum vinnubrögðum liðstjórans og hans stjórnunarháttum þannig að það er mikils ætlast af Skúla (broskall)
Var ekki Atli ráðinn sem liðstjóri? Hefur einhver hreytt í honum.?
Mæti.
Er sammála því að þetta er leikur sem verður að vinnast og því um að gera að tefla fram eins sterku liði og hægt er.
Frakkland verður Evrópumeistari.
kv.
Gústi.
Hver er þessi Atli??
Ég mæti.
Mæti
Ég og Freyzer styðum að reyna að fá Stebba í leikinn
Mæti, Tékkland vinnur Evrópumótið
Mæti , Ég tel að Czech Republi taki þetta mót Létt
Ég mæti
Ég mæti
Ég er á kvöldvakt á morgun. Afar ólíklegt að ég komist.
ég mæti á línuna og hvet mína menn, en hvað með menn eins og Kjartan Hemma og félaga?
styð Stebba hann er nú jú metrómaður
Ég mæti
Andri mætir
Það eru nú frekar margir búnir að skrá sig í þennan leik. Er ekki ágætt að við köllum Stebba til þegar við þurfum á því að halda??
Væri mjög gott að fá Stebba.. svo held ég að það væri sniðugt að stilla upp smá leikerfum í föstum leikatriðum, við erum með góða skallamenn og gott væri að nýta það sem best. Hafa smá skipulag á þessu, það er mjög einfalt.
Stebbinn kemur…….
ef ég tel rétt þá erum við 18 með stebba
Það er góð tala, allt í lagi að vera 20 held ég…..
hvar er villi, danni, stefnir?
Danni kemur
Hrói, ég ætla að segja Þýskaland.
Það eru fullt af liðum eftir til að giska á þannig að það þarf enginn að nota sama lið og ég. Ég er ekki fyrir að skipta á milli.
Hver ætlar að giska á Austurríki?
Thyskaland tekur tetta i ar. Takid tennan leik gegn TLC var tad ekki eitthvad stelpu-rapp band. Tu aettir ad geta fraett okkur adeins meira um tad Atli…
Ég mæti
cool loksins virkaði þetta er buin að vera i veseni ad skrifa her enn loksins kom það Bingó
Flottur Andri, það er nú gott að gæslumenn séu að verða tæknivæddir
mæti
ok við fáum þá Stebba með okkur… En við þessir lakari verðum að átta okkur á því að við gætum hugsanlega ekki spilað 1 mínútu…..
Ég mæti
Hvar er þá Kjartan ???
Væruð þið til að skrifa inn nr. á treyjunum ykkar þið sem voruð að fá treyjur……
Ég er nr 26.
Er þetta hér fyrir neðan ekki það sem þú varst að tala um bjammi?
http://www.youtube.com/watch?v=m-n-jZJhpT4&feature=related
ég er Numer 30. Já Hrói þetta er allt að gerast i vinnunni allir að verða mega tæknivæddir
ég er nr.24
Kjartan kemst ekki…
Ég er ekki með treyju. Verð að fjárfesta í svoleiðis. Hvar fæ ég svona eðalbleika treyju?
Villi taktu treyjuna hjá Baldri nr 15 Richter
ég er nr 9
Miðvikudagar eru greinilega betri en mánudagar. Við vorum 11 á mánudagsæfingunni en nú eru 22 búnir að skrá sig í leikinn !!!
Mikið væri gaman að sjá svona marga á æfingu. Geta skipt í 2×11 !
Sælir. Var rétt í þessu að komast að því að ég kemst ekki. Því miður. Enn ég mæti bara ferskur á næstu æfingu og í næsta leik
Kveðja Andri Jó
Er ekki málið að menn mæti ekki seinna en kl.19.45 svo við getum tekið góðan stöðufund??
Ég er ekki með mína treyju heima. Veit einhver hver er með hana?
Ég er að vinna fram á kvöld en kem vonandi og horfi á einhvern hluta leiksins. Næ því vonandi.
mæti á hliðarlínuna til að öskra ókvæðis orðum á TLC og dómarann fyrst bjammi kemst ekki í það verkefni
Mæting klukkan 19,45
Ég á eftir að borga fyrir treyju og ég finn ekki reiknings nr. endilega látið það flakka