Eftir tvo sigurleiki í röð kom að fyrsta tapleik sumarsins. Hann var gegn sterku liði TLC við Egilshöll í hífandi roki í kvöld. Til gamans ætla ég að byrja á að deila með ykkur mynd sem er afar táknræn fyrir leikinn:

Eins og ég sagði þá töpuðum við fyrir sterku liði í kvöld. Það breytir því ekki að við áttum í fullu tré við þá allan leikinn. Ég er búinn að skrifa yfir mig í dag þannig að ég ætla ekki að lýsa leiknum í þaula í þetta sinn. Við spiluðum ágætlega og áttum mörg fín færi. Munurinn á liðunum lá í því að þeir nýttu færin sín betur. Við fengum hins vegar dauðafæri í stöðunni 0-0 og hefðum eiginlega þurft á því að halda að setja á þá mark undan vindinum í fyrri hálfleik. Það gekk hins vegar ekki eftir þrátt fyrir nokkrar góðar tilraunir.
Seinni hálfleikurinn var nokkuð vel spilaður af okkar hálfu. Þeir komust þó nokkrum sinnum í gegn og nýttu færin sín afar vel, svo ekki sé meira sagt. Dómgæslan í kvöld fannst mér ágæt á köflum. Dómarinn dæmdi vel út á vellinum en ansi fannst mér halla á okkur þegar kom að rangstöðudómum. Þannig var dæmt af okkur mark í stöðunni 0-0 eftir að boltinn hafði fallið innfyrir vörnina. Þá tók dómarinn einnig kjörið marktækifæri af Kidda í fyrri hálfeik. Þeir nutu vafans fannst mér í báðum hálfleikjum hvað rangstöðuna varðar. Það er líklega erfitt að vera ósammála því.
Gangur leiksins var sem sagt á þá leið að þeir komust í 2-0. Við minnkuðum í 2-1 en þeir bættu þá tveimur mörkum við. Við klóruðum í bakkann og fengum eftir það 2 mjög góð færi en Kidda brást bogalistin. Kiddi setti fyrra mark okkar en áhöld eru um það hvort Hróar eða Hjörvar skoruðu seinna markið. Báðir vilja meina að hinn hafi skorað. Ef þetta er vandamál þá skal ég fórna mér og skrá markið á mig.
Við vorum með marga leikmenn í kvöld. Það var eins gott því nokkrir urðu fyrir hnjaski og aðrir keyrðu sig fljótt út. Það er bara hið besta mál og gott að hafa óþreytta menn á bekknum. Ottó var til dæmis alveg óþreyttur
Vil tilnefna Njörð mann leiksins að þessu sinni. Hann vann afar vel á miðjunni og átti góðar sendingar. Gerði fá mistök og spilaði allan leikinn. Ég vil hins vegar tilnefna Hjörvar sem mann dagsins. Þá útnefningu fær hann fyrir að láta okkur allhressilega heyra það í hálfleik. Við áttum það skilið. Við erum ekki í þessu til að röfla í dómurunum. Við erum í þessu til að hafa gaman. Hann minnti okkur rækilega á það og átti auk þess mjög góðan leik sjálfur. Þeir Njörður voru okkar bestu menn í dag, að öðrum ólöstuðum.
Ég vil reyndar setja spurningamerki við það háttalag okkar að garga á dómarann þegar hann augljóslega dæmir rétt. Stundum gargaði bekkurinn af lífi og sál þegar allir sáu að rangstaðan, innkastið eða aukaspyrnan var réttilega dæmd. Menn vissu stundum að dómurinn var réttur en ákváðu samt að garga ókvæðisorðum að dómaranum. Það getur aldrei komið okkur til góðs! Frekar að þegja eða hrósa dómaranum fyrir að gera vel, jafnvel þó hann hafi átt slæman dag.
Á morgun verður æfing klukkan 9. Staðsetningin er ekki komin á hreint en ég bið ykkur að melda ykkur hér. Vonandi verðum við um 20 á æfingunni.
Læt að lokum nokkrar skemmtilegar myndir fljóta með, venju samkvæmt.
Byrjum á Sævari sem stjórnaði innáskiptingum af myndarskap. Enda myndarlegur maður:

Njörður spilaði vel í dag og festi sig í sessi sem einn af okkar bestu miðjumönnum:

Kiddi átti fína spretti í leiknum og gaf ekki tommu eftir. Með betri mönnum í dag:

Hér er hann í dauðafæri…

…og bað æðri máttarvöld um hjálp…

…og var bænheyrður:

Freyr einbeittur á svip:

Haffi var nálægt því að skora af 40 metra færi í dag:

Daníel kom meiddur útaf en komst fljótlega undir góðar hendur, eins og glöggt má sjá. Hann fór því fljótlega aftur inná.

Meldið ykkur á æfinguna á morgun, fimmtudag klukkan 21 !!!!
Kv. Baldur
mæti
ég kemst því miður ekki í dag á æfingu
en leikurinn var góður, biðst afsökunar á þessum klúðrum……
Ég kemst ekki í dag! En ég vil minna menn á að borga þeir sem eiga eftir að borga búningana.
Ég kemst ekki á æfingu í kvöld
Mæti
Ég kemst ekki, verð á ráðstefnu á Laugarvatni.
Kemst ekki, meiddur
Mæti.
mæti.
Er nefnilega ekkert eftir mig eftir leikinn í gær. Kanski maður sé að komast í form?
Ég mæti
kemst ekki
Kemst ekki í kvöld
kemst ekki, er meiddur. Fer vonandi að komast í samt lag.
Kem nú ekki í kvöld en ætti að komast á ról von bráðar…..
Hver er þessi Atli Sveinn?
Ég minni menn á að það er hver að verða síðastur í að vera með í EM-pottinum, potturinn er kominn í 10 kippur.
Hjörvar startar svo tippleik von bráðar
Sýnist við aðeins vera orðnir sex talsins. Það þýðir væntanlega cancel í enn eitt skiptið.
kemst því miður ekki á eftir, barnapían klikkaði…
Djöfullinn er þetta????
Hvernig hefði mætingin verið ef það hefði verið boðað í leik????
Merkilegur andskoti hvað menn geta mætt í leik en ekki æfingar, þó það sé á svipuðum tíma á svipuðum dögum.
Ég tel 5 Baldur.
Eða er sem sagt verið að hætta við æfingu?
Mér sýnist ekki verða æfing úr þessu
Ég verð því miður að afboða mig í kvöld og hefði átt að gera það aðeins fyrr.
En mér sýnist á öllu að SMS kerfið fari í gang aftur fyrir næstu æfingu. Allt of fáir sem melda sig. Af öllum hópnum okkar hefði átt að vera ekkert mál að fá æfingu í kvöld þrátt fyrir forföll.
kem ekki , sorry hvað ég er seinn í þessu
Hrói.
ég er með og segi Þýskaland
Kannski sklijanlegt að menn komist ekki, það var nú leikur í gær. Næsta æfing verður þá á þriðjudag!!!!
Ég set kippu á Frakkana.