Jæja drengir þá er komið að því. EM tippleikurinn okkar “EuroTipp” er að fara í loftið. Fyrsta umferð EM hefst á laugardaginn svo menn þurfa að hafa hraðar hendur ef þeir ætla að vera með í leiknum. Leikurinn er einfaldur, þið sækið skjalið á slóðinni : http://www.box.net/shared/5o2ywdlgcw
Fyllið skjalið samviskusamlega út með ykkar spá um markatölur leikjanna og sendið skjalið á mig á mailinu hjorvar@gmail.com
Eins og fram kom hér að framan þá hefst fyrsta umferð núna á laugardaginn og þurfa menn að vera búnir að skila inn skjalinu áður en fyrsti leikur hefst.
Það kostar 500 kall að taka þátt í hverri umferð og peningurinn fer allur í að kaupa verðlaun. Verðlaunin fyrir sigur í hverri umferð er kassi af bjór ( eða öðrum veigum fyrir þá sem ekki drekka ). Í lok móts verða svo veitt stærri verðlaun fyrir hinn og þennan árangur í leiknum.
Höfum það ekki lengra í bili, drífið ykkur nú að rífa í tippið drengir.
Kv. Hjörvar
Þetta er þvílík flott hjá Hjörvar og ber að hrósa honum fyrir þessa snilld, nú er bara um að gera fyrir menn að drífa sig í að tippa og senda þetta á kallinn.
Það er skemmtilegra þegar fleiri taka þátt, það verður annað hvort rukkað fyrir þetta á æfingum eða að menn leggja bara inná reikninginn, kannski best þannig, skoðum það
Koma svo drengir TIPPA
Búinn að tippa
Búinn
og búinn að vinna pottinn!!!!!!
Búinn að tippa.
Hafi það farið framhjá einhverjum þá set ég kippu á Frakkana í þessu móti.
Komið inn Baldur .
Þetta er að verða rosapottur og hver að verða síðastur að vera með, menn geta ekki komið inní þennan pott eftir að fyrsti leikur er byrjaður þannig að þið sem eruð ekki komnir í pottinn veljip lið og giskið.
Og Tippa
Hrói, held að Bjammi hafi sagt Þýskaland. án þess að vera pottþétt. sýndist það í skoðunum fyrir nokkrum pistlum.
Búinn að senda til þín Hjörvar.
Þetta lýst mér á. Sem meðlimur í tilvonandi hall of fame safni metrómanna þá hlýt ég að fá að vera með.
Er búinn að senda á þig Hjörvar og borga fyrir fyrstu 3 umferðirnar.
Svona á að gera þetta
Skúli ég millifærði yfir á reikninginn þinn 5000 kr. fyrir treyju, ég var ekki viss á verðinu þannig þú lætur mig bara vita hvað það varðar.
Búinn að tippa
ég fæ alltaf eitthvað error þegar ég reyni að opna þetta skjal!!! Þið eruð bara heppnir því ég myndi vinna þetta allt saman.
En þið verðið líka að kíkja á síðuna hjá mér og Óskari http://www.skrolli.blogcentral.is þar er einnig smá bjórleikur í tilefni EM2008!!!!
er búin að tippa
Búinn að tippa og ætla að spá því að þetta sé árið sem Spánn vinnur.
Skúli… af hverju gefurðu ekki bara peninginn í árshátíðarsjóð Metró í staðinn?
Að veðja á Spán, er svona eins og að fá að vera með, án þess hafa nein áhrif, og er stundum kallað að vera súkkulaði.
Úff, fast er skotið.
Spurning hvort Viktor þurfi að éta þetta ofan í sig.
Spörum svörin svona áður en mótið byrjar allt saman en ef Spánn vinnur ekki þá er ekkert mál að láta 6 erdingar dökka af hendi því það er eini bjórinn sem ég drekk og ég ætla að fá svoleiðis bjór frá öllum ÞEGAR ég vinn hihi
je right…..
allavega þá hlýt ég að vera efstur eftir fyrsta daginn með 7 stig eftir 2 leiki
“Fótbolti er ekki flókin íþrótt. 22 menn, 2 mörk, einn bolti… og þjóðverjar vinna.”
Sævar minn ég er með 20 stig eftir 4 leiki
Hvernig er með æfingu á morgun, skúli hefurðu náð í óla??? ef ekki er þá hægt að vera við Egilshöll Danni??
Er æfing í kvöld ?
Var ekki talað um þri og fim??
Ég hef ekkert náð í Óla og er að fara til Rússlands á morgun og kem ekki aftur fyrr en á sunnudag. Kem því ekki á æfingar á meðan. Hrói þú ath kannski með hann Óla….
ok geri það og góða ferð pungur