Sælir drengir!!!
Eitthvað stemmingsleysi er að myndast í hópnum og þurfum við að fara að rífa okkur upp. Æfingamál hafa verið í rugli og mætingin á æfingar léleg, menn fara í golf frekar en að mæta á æfingu…
Nú festum við æfingar á þriðjudögum klukkan 21 við Egilshöll og á fimmtudögum klukkan 21 í fagralundi, þannig að þá eru menn með þetta á hreinu og ekkert rugl.
Annað mál, næsti leikur er á sunnudag klukkan 21 á Fylkisvelli, spilum við Rússneska Björninn CCCP og er þarna á ferð eitt af sterkustu liðunum í deildinni.
Hverjir komast og ef að menn vilja taka eina æfingu fyrir leik þá legg ég til að við mætum á morgun við Egilshöll klukkan 21 og tökum smá bolta, hvernig líst mönnum á það??
Kem hvorki á æfinguna né í leikinn.
mæti og það vantar ekki stemmara í mig
Kíkið líka á EM leikinn og sjáið hverjir eru enn með í pottinum um þessar 14 kippur.
Svo þurfum við að fara að greiða fyrir þessar 2 umferðir í tippinu svo að sigurvegarnir geti farið að sötra bjórinn.
Hjörvar hefur ekki geta fylgt þessu nógu vel eftir þar sem hann er staddur erlendis og mikið búið að vera að gera hjá kalli.
Hann hendir inn úrslitum úr 2 umferð þegar hann kemur heim, en ykkur til gaman þá náði ég 12 stigum og var það gríðarleg bæting fra 5 stigum úr 1 umferð
Ég mæti á sunnudag og á föstudag ef að menn nenna
ég kemst ekki annað kvöld, en er til fyrri part laugardags ef menn nenna þá……
Já fyrri partur á laugardag er líka fínn
Algjörlega sammála Hróa, þarf að fara rífa þetta upp.
Ég mæti í leikinn.
Veit ekki hvort ég kemst í kvöld.
Ég mæti í leikinn
Ég mæti í leikinn og á æfingu, hvenær sem hún er. Var einhver mæting í gærkvöldi?
Kemst ekki i kvöld er að fara í útilegu.
Mæti klár í leikinn.
Það er mjög gott mál að vera búnir að negla niður æfingatíma.
kv.
Gústi.
Meiddur aftan í læri, og verð þar að auki fyrir norðan
Er að jafna mig eftir bakmeiðsli og verð ekki með á æfingu né í leiknum en stefni á að mæta í næstu viku.
Er tilbúin í leik og hugsanlega æfingu fer eftir tímasetningu
Kemst ekki í kvöld, fyrripartur á morgun er fínn… veit ekki með leikinn
Æfingin verður fyrripart á morgun við Egils
hvenær er fyrripartur hjá ykkur, er ekki sterkast að negla tíma svo að menn geti planað daginn. Hvað segið þið um 14.00
kemst ekki ég var búinn að lofa mér á laugadag í annað
kemst ekki, vinna á morgun
Klukkan 14 er æfing.
Ég veit ekki hvort ég kemst en ég reyni
ég er enn meiddur, því miður en þetta hlýtur að fara koma
Ég verð að vinna til 8 bæði laugardag og sunnudag.
Hrói, það er spurning um að gera bara nýjan pistil um æfinguna, svo það sé alveg á hreinu hvenær og hvar hún er, ég allavega alveg ruglaðist að lesa þessi komment.
Kem ekki í leikinn. Verð fyrir norðan