Dómarinn lagði strax línurnar um það hvernig hann myndi vera í leiknum þegar hann flautaði leikinn á og við vorum ekki komnir allir inná nokkrir enn að klæða sig úr, flottur kall þessi dómari.
Byrjunarlið var
Gústi
Villi Ásgeir Hrói Otto
Kobbi Njörður Danni Raggi
Bjartmar
Kiddi
Við lágum aftarlega í fyrri hálfleik og beittum skyndisóknum. Þeir fengum fleiri færi í fyrri hálfleik og skoruðu mark eftir smá mistök hjá okkur í varnarvinnunni. Kiddi jafnaði síðan leikinn eftir mikla baráttu í teignum þar sem hann vann boltann af varnarmanni og þrumaði honum inn.
Fátt markvert gerðist meira í fyrri hálfleik, nema hvað Kobbi fékk gult fyrir stympingar og Ottó ætlaði að spila með sólgleraugun, snillingur þar á ferð.
Í seinni hálfleik tökum við öll völd á vellinum og fengum fjöldan allan af færum og tókum mörg skot en ekki vildi tuðran inn. Þeir fengu engin alvöru færi í seinni hálfleik, en þegar 2 mín voru eftir smellhittir einn rússinn boltan fyrir utan teig og söng hann í netinu þrátt fyrir góða tilraun hjá Gústa sem sá boltann seint.
Svekkelsi að hafa tapað en mjög góður leikur hjá okkur, tókum boltann niður og vorum að reyna að spila honum á milli allan leikinn, menn rólegir á boltanum og mikil yfirvegun í okkar leik.
Gústi átti frábæran leik í markinu varði nokkrum sinnum mjög vel í fyrri hálfleik og stjórnaði teignum í þeim seinni. Vörnin var góð eftir að hún var búin að slípast til og átti Villi sinn besta leik í sumar, Ásgeir og Hrói náðu vel saman í miðju varnar og Otto og Bjammi leystu vinstri bak vel.
Miðjan átti mjög góðan leik og voru Njörður, Danni og Kjartan allir að spila vel og búa til fullt af góðu spili og færum. Kobbi og Raggi unnu vel á könntunum og var Raggi óheppinn að skora ekki í leiknum.
Frammi var svo nautið hann Kiddi sem hlýtur að vera versta martröð hvers varnarmanns, hann vann allan leikinn, fór í alla bolta og hnoðaðist og djöflaðist í vörninni hjá þeim, hefði nú mátt fá fleiri aukaspyrnur þar sem þeir héngu á honum mikið í leiknum.
Margt jákvætt úr þessum leik, við enduðum margar sóknir með skotum, spiluðum boltanum, tuðuðum ekkert í dómaranum ( þrátt fyrir að hann hafi ekki farið úr miðju hringnum ).
Munurinn lá kannski á bekknum, en þeir voru með 4-5 skiptimenn en við 2 og annan skelþunnan
Góður leikur drengir og nú er bara æfing við Egils á þriðjudag klukkan 21
Sá Ítalski out
Glæsilegt að standa í Rússunum þrátt fyrir að það vantaði marga menn. Ég ætla að mæta á æfinguna á þriðjudag og er búinn að bíða lengi eftir æfingu. Nú mæta allir á æfinguna
Við gerðum betur en það, vorum líklegri til að klára þennan leik heldur en þeir, gott mark hjá þeim í restina og lítið hægt að gera við því.
Við hefðum samt getað verið búnir að klára þetta.
Annars er spennan í hámarki í bjórpottinum og þar sem ég var að detta út þá erum við hættir með þennan leik
5 eftir um þessar 14 kippur…….
Ég mæti . Góður pistill Hrói samála Villi átti sinn besta í sumar
Þetta var stórskemmtilegur leikur. Mjög fínt veður til boltaleiks (nema kanski full mikil sól)
Edgar Davids mátti spila með sólgleraugu, en hann var svo svalur að hann var kanski með undanþágu.
ég er meiddur og mæti ekki á æfingu. Hugurinn ber mann hálfa leið átti klárlega vel við í gær þegar ég reyndi ða vinna vel til baka og tognaði aftan í læri við að elta gerpið uppi. Verð vonandi góður sem fyrst
mæti ekki, er að vinna
Ég geri fastlega ráð fyrir mætingu frá mér
Það er leikur á Fjölnisvelli, en það er spurning um að mæta bara þar á sparkvöll því að það eru svo margir meiddir, en ef að það er góð mæting þá færum við okkur bara uppí mosó, tilkynning um það klukkan 17:03
Ég mæti í kvöld.. ég styð sparkvöll í kvöld. Það er enn smá þreyta í manni eftir síðasta leik.
Flottur pistill Hrói. Villi var með erfiðan mann á sér allan leikinn og leysti það snilldarvel. Einnig var nú pistlahöfundurinn sjálfur að spila eins og kóngur í vörninni og stoppaði ófár vænlegar sóknir CCCP-manna. Annars var það liðsheildin og leikgleði sem skilaði okkur þessum ágæta leik.
Sparkvöllur er málið, nautin eru eins og grjót á manni ennþá eftir leikinn.
Æfingin er sem sagt klukkan 21 við Egils
er soldið stífur í lærinu….segji pass í dag og kemst ekki á fimmtudag, þar sem er kvennalandsleikur….
fer á hlaupabrautina í staðin
Það verður á ekkert minna en 3 km Kiddi, er það á hreinu!!!!!
Ekki bara einn hringur og svo í kaffi inn til Dags, það gengur ekki.
Þetta var mjög góður leikur hjá okkur. Miklu betra að liggja aðeins aftar og vera þolinmóðir í stað þess að fá þessi hröðu upphlaup á okkur. Við hefðum átt að vinna þennan leik.
Þó þeir hafi byrjað sprækari en við í upphafi þá fannst mér þeir verða fljótt þreyttir jafnvel þreyttari en við.