
Það varð ljóst strax á upphafs mínútunum í kvöld að Vængir Júpíters yrðu okkur erfiðir. Þeir tóku yfirhöndina strax og skoruðu í einni af sínum fyrstu sóknum, áður en við vissum hvaðan á okkur stóð veðrið. Liðsstjórinn lagði upp með að við myndum sækja strax frá byrjun og pressa þá upp allan völl. Það gerðu bara nokkrir einstaklingar en ekki liðið í heild sinni. Því varð langt á milli manna og Vængirnir fengju fljúgandi start; 2-0 eftir korter.
Það var ekki fyrr en leið á seinni hálfleikinn sem við komumst aðeins inn í leikinn. Kiddi var skeinuhættur fram á við en miðjan náði sér þó aldrei almennilega á strik og hlaupin urðu mikil. Vængirnir gáfu okkur engan tíma með boltann og voru mun sterkari í leiknum. Kiddi nældi sér í víti undir lok fyrri hálfleiks sem hann skoraði auðvitað úr sjálfur og gaf okkur von um að í síðari hálfleik gætum við jafnað.
Í stað þess að jafna skoruðu þeir þriðja markið sitt áður en Kiddi minnkaði muninn í 3-2 upp á eigin spítur. Ég ætla fyrir hönd sóknarleiks okkar að vona að hann missi ekki af leikjumí sumar. Við fengum nokkur þokkaleg færi í seinni hálfleik en þeir kláruðu leikinn með tveimur mörkum seint í háfleiknum. Mönnum virtist býsna létt þegar frábær dómari leiksins flautaði af. Ekki á hverjum degi sem við fáum svona góðan dómara í þessari deild. Við getum ekki hreykt okkur af fallegri knattspyrnu í kvöld en við getum hrósað okkur fyrir þann aga að spila fast en fair og fyrir að hafa látið dómarann algjörlega í friði.
Vængirnir stóðu okkur framar á flestum sviðum knattspyrnunnar. Þeir sundurspiluðu okkur á köflum leyfðu okkur aldrei að snúa með boltann. Í bitrum sannleika sagt betri en við. Þeir fara langt í þessu móti með sömu spilamennsku. Í kvöld hefðum við þurft á því að halda að spila okkar besta leik og vera með okkar allra sterkustu pósta á miðjunni. Með því er ég ekki að gera lítið úr þeim sem spiluðu þar. Þeir hafa samt flestir átt betri leiki í sumar.
Fjórtán manns voru klárir og spiluðu í kvöld: Gústi, Villi, Haffi, Hemmi, Víðir, Hrói, Freyr, Kjartan, Kiddi, Njörður, Viktor, Skúli, Stefnir og Sævar.
Þessa vantaði: Daníel, Ragga, Andra, Baldur, Kobbi, Ásgeir, Hjörvar, Bjartmar og Ottó.
Þar sem knattspyrnan var ekki falleg í kvöld ætla ég ekki að birta margar myndir úr leiknum. Það var hins vegar nóg af fallegum knattspyrnumönnum á vellinum í kvöld, eins og glögglega má sjá á myndunum hér á eftir.
Freyr var gullfallegur að vanda.

Ekki var Hrói síðri. Hann spilaði heilan leik í gær.

Vorum sæmilega sáttir við stöðuna í hálfleik, þrátt fyrir vonda spilamennsku:

Andri leit við:

Ásgeir var meiddur að ég held. Mætti samt og mættu aðrir taka það fyrir fyrirmyndar!:

Ég var þarna en treyjan mín ekki. Hún var í Keflavík ![]()

Stundum skall hurð nærri hælum upp við mark Vængjanna. Hér er Kiddi hársbreidd frá því að lauma einu inn:

Freyr átti fína sendingu á Kidda sem var umkringdur varnarmönnum. Úr varð seinna markið okkar.

Hamagangur í öskjunni:

Villi á fullu:

Kiddi í öðru færi:

Aukaspyna á hættulegum stað:

Teygt á í leikslok:

Skúli las Viktori pistil um holdafar og bjórdrykkju:

Sævar var sætur að vanda. Spilaði sinn fyrsta leik í langan tíma:

Víðir svitnaði duglega. Var mjög djúpur á miðju í seinni en stóð að venju fyrir sínu:

Kiddi barðist eins og ljón allan leikinn og elti allt sem hreyfðist! Tvö góð mörk og maður leiksins okkar megin. “Hvenær æfir þessi maður?” heyrðist á hliðarlínunni.

Gústi var niðurlútur í leikslok. Það var óþarfi. Við töpuðum fyrir betra liði í gær.

Viktor var heldur ekki upprifinn að leik loknum:

Villi gaf sig allan í leikinn venju samkvæmt. Verður seint vændur um að leggja sig ekki fram:

Kjartan náði sér ekki á strik. Hefði á stundum mátt losa boltann fyrr en átti nokkrar hættulegar sendingar á Kidda og vann þónokkra skallabolta vel:

Annað skiptir ekki máli og því kveð ég að sinni.
Baldur
Já þeir voru einfaldlega betri en við í þessum leik. Það er nokkuð ljóst að Kiddi stóð upp úr í þessum leik. Hins vegar í öðru markinu átti Freyr flotta sendingu á Kidda sem lagði boltan laglega í hornið fjær.
Það er erfitt að pressa svona gott lið verandi í ekki betra formi en við erum. Ég er enn á því að við eigum að liggja aftur, vera þolinmóðir, eins og í leiknum á móti CCCP sem mér fannst taktískt okkar besti leikur í sumar. Kiddi sér svo um að læða einu eða tveimur mörkum inn eftir stungu frá miðju eða úr vörn.
Já þeir áttu sigurinn skilinn. Við þufum aðeins að bæta í hjá okkur og ljóst að við verðum að sækja á fleiri mönnum, það var oft einmannalegt hjá nautinu þarna frammi.
Samt nokkrir ljósir punktar hjá okkur í þessu, en við verðum að fara að koma okkur í betra form það eru alltof margir hjá okkur í bara sæmilegu formi.
Er að spá í þessi mál, spurning um að stofna heilsuklúbb innan Metro og koma mönnum á Herbalife og hittast svo einu sinni, tvisvar í mánuði og gera eitthvað, labba á Esjuna, fara í strandablak, golf, hlaupa og eitthvað þannig.
Ég myndi hafa yfirumsjón yfir þessu og tek einhvern með mér í þetta, gerum mælingar í byrjun og mælum okkur svo mánaðarlega ( ummál, þyngd og fituprósentu) þetta er snilld djöfull líst mér á þetta….:) Hverjir hefðu áhuga á einhverju svona????? Ég er snillingur
Annað mál fyrst ég er kominn á flug, bjórleikurinn góði. Skúli og Víðir unnu leikinn þannig að þeir eiga inni 6 kippur á mann, menn koma bara með þetta á næstu æfingu sem er á fimmtudag í fagralundi býst ég við, látið bara vita hverjir eru búnir að koma með kippur og ég stroka menn út af listanum.
Svo á Hjörvar enn eftir að birta niðurstöður úr 2.umferð í tippleiknum og svo finnum við eitthvað út úr því.
Heilsukveðjur Hrói
Ég er sammála þér Hrói, þú ert snillingur
Líst vel á þessa hugmynd, ég tek þátt. Allir í strandblak á morgun í Fagralundi…..
Líst vel á þetta, enda kominn á Herbann nú þegar og líkar vel.
Ég klára að setja inn úrslitin úr 2. umferð í kvöld.
Biðst afsökunnar á að hafa ekki komið í gær, ég var bara handónýtur, með mígreniskast og sofnaði fljótlega uppúr 9 í gærkvöldi. Ég læt svona aumingjaskap ekki stoppa mig aftur. Ég verð klár í alla leiki það sem eftir er sama hvernig ástandið er á mér verður.
Kv. Hjörvar
Ég er til í heilsurækt. Esjan um næstu helgi! Þurfum að hrista okkur saman. Má taka tvöfalldan skammt af Herbalife?
Já já þrefaldann ef að þú vilt, innifalið í heilsuklúbbnum er náttúrulega það að ég geri prógram fyrir menn og set upp létt matarprógramm mönnum að kostnaðarlausu. Þetta er allt mjög einfalt og ekki mikið sem menn þurfa að breyta hjá sér til að sjá mikinn árangur. Þetta lítur vel út ég er farinn að útbúa blöð og eitthvað kynningarefni fyrir þennan heilsuklúbb, ég er snillingur…..
Nú verður hlaupið á hverjum degi, og byrjað í kvöld. Við Baldur hlaupum seinnipartinn, ef hann fer ekki á skytterí. Fleiri með?
Stefnan er tekið á útivistarsvæðið í dalnum milli Vífilsstaða og Heimsenda. Þetta útleggst á íslensku milli heimkynna minna og Vífilstaðaspítala í Garðabænum (framhjá golfvellinum). Þar er hringur sem hægt er að hlaupa og ef hann er of stuttur, þá bara 2x.
Annars er ég til í heilsuklúbbinn.
Spurning um að leyfa metrokonum að vera með í heilsuklúbbnum, þær sem vilja …..bara hugmynd gæti verið gaman og myndað skemmtilega stemmingu…. ´ég er kominn á flug í þessu……
… á vængjum júpiters kannski? hnjé hnjé hnjé hnjé *blautt prump*
hehehe “drulla”
mér líst vel á þetta allt saman fyrir utan tvö síðustu komment, sem voru nátturulega mjög súr.
annars legg ég til að við förum að halda hið árlega
Metró Open golfmót til að þjappa hópnum saman og drepa stemningsleysið sem hefur myndast þá sérstaklega í kringum æfiingar.
já og svo vantar okkur nýjan liðstjóra eftir að ég var rekinn eftir slæmt gengi undanfarið….
hehehe golfmótið verður í lok júlí, Gústi kemur með tilkyningu um það.