
Jæja, 1-0 tap var það að þessu sinni. Markið kom eftir hornspyrnuna hér að ofan. Við erum búnir að tapa of mörgum leikjum í röð. Eins og í síðasta leik varð léleg byrjun okkur að falli. Hrói benti réttilega á að hluta skýringarinnar má rekja til þess að við mætum seint og illa á æfingar og í leiki. Ég kom beint úr vinnunni, korteri fyrir leik og þá voru bara 9 komnir og enn færri búnir að hita upp. Það var líka eins og við manninn mælt að Vatnaliljur voru komnir yfir eftir fáeinar mínútur, enda við kaldir og illa samstilltir að mér fannst. Markið kom eftir hornspyrnu.
En til að gera langa sögu stutta þá voru þeir betri en við í fyrri hálfleik. Þeir áttu þrjú ágæt færi en við eitt og að því leytinu til fannst mér forysta þeirra verðskulduð í hálfleik. Í þeim síðari spýttum við heldur betur í lófana og yfirspiluðum þá. Miðjan var þá sérstaklega sterk og svo var hægri bakvörðurinn gríðarlega þéttur (fyrir) í 20 mínútur í þeim seinni.
Þrátt fyrir ótrúleg marktækifæri tókst okkur ekki að skora. Til þess fengum við heldur betur færin. Kiddi var þrisvar kominn í afar vænlega stöðu þegar brotið var á honum en dapur dómari leiksins setti strax í upphafi þá línu að flauta hvorki á svæsnar bakhrindingar né önnur brot. Hann dæmdi þó jafn undarlega beggja megin og er það fyrir mestu, þó við hefðum sannarlega átt að fá fleiri vítaspyrnur en þeir.
Við sóttum nokkuð vel í síðari hálfleik og sprengdum þá, að mér fannst. Þeir áttu svo einar tvær mjög hættulegar sóknir í blálokin en lokastaðan var 1-0. Grátlegt tap en eins og einn þeirra komst að orði hefði þessi leikur getað farið á báða vegu. Þeir gera það samt sjaldnast.
Þessir byrjðuðu: Gústi, Víðir, Villi, Hrói, Ásgeir, Haffi, Viktor, Óli, Hjörvar, Njörður og Kiddi.
Þessir komu inná: Sævar, Ottó, Baldur, Finnur og Atli Sveinn.
Venju samkvæmt smellti ég af nokkrum myndum. Ottó greip vélina líka í seinni:
Við áttum fín færi í leiknum:

Hér skall hurð nærri hælum við mark þeirra:

Er þetta flugvél?

“Á ég að vera að taka þetta innkast,” gæti hann verið að hugsa:

Ottó lét ekki sitt eftir liggja:

Atli kom mjög sterkur inn í seinni. Átti hættulegar sendingar og gerði vel:

Ekki hér í gegn kallinn minn:

Haffi átti sinn besta leik í langan tíma og var nálægt því að skora hér:

Baldur lipurtá. Gríðarlega léttur á fæti eins og hér sést:

Ég minni ALLA á Esjugöngu á morgun klukkan 19:00. Kominn tími til að hrista hópinn saman eftir dapurt gengi í undanförnum leikjum. Er það ekki?
Kv. Baldur
Uss. En ég er allavega laus í leikinn sem er 20 ef það vantar.
Finnst nú líka alveg þess virði að minnast á hvað Atli er sérlega myndarlegur á þessari mynd!
Það var nú leitt að geta ekki hlunkast með ykkur í þessum leik. En svona er þetta, ég er að spara við mig bjórinn hér í Noregi og hlakka til að taka þátt í átakinu með ykkur strákar og skrái mig hér með í átakið
Góður Skúli.
Er mæting við Esjuna klukkan 19??
Þakka þér fyrir jón