Æfing í kvöld. Gengið á Esjuna. Höfum gott af því allir sem einn. Mæting við Esjuna klukkan 19.00 - stundvíslega !!
Það er algjört lágmark að ná í 11 manna lið upp á topp. Engin afsökun. Við erum einn hópur og eigum að sjá sóma okkar í því að mæta á svona viðburði.
Þessir mæta:
Hrói
Hjörvar
Baldur
Villi
Gústi
Ásgeir
Viktor
Ottó
Haffi
mæti
Ég mæti, Baldur getur þú pikkað mig með þér??
Ég reyni að mæta, veit ekki hvort að ég kemst í tíma úr vinnunni til þess að mæta
Þrátt fyrir stórar yfirlýsingar í gær, þá sé ég ekki fram á að mæta í kvöld. Ég get varla stigið í hægri fótinn.
Sé hvernig ég verð eftir vinnu og læt vita.
Ég er handónýtur í vinstri ökklanum og veikur í þokkabót, en það hvarlar ekki að mér að mæta ekki. Þetta verður bara gaman.
Ottó mætir.
Úff… eftir svona innlegg, þá fær maður næstum því samviskubit. Fokk idd, ég mæti.
Kemst ekki, fer úr bænum í kvöld og kem ekki aftur fyrr en á sunnudag.
Við hemmi verður í veiði þessa vikuna þannig að við sjáumst bara í næstu viku.
Þess má geta að þeir einu sem eru löglega afsakaðir, eru Skúli (erlendis), Raggi (erlendis), Njörður (meiddur), Víðir (meiddur), Kobbi (úti á landi), Hemmi (úti á landi), Kjartan (úti á landi), og Finnur (úti að aka)
kemst ekki - mjöðmin í fokki…
eins mikið og mig langar að mæta er brjálað að gera í brúðkaupsundirbúningi og er ég búin að ráðstafa nánast öllum kvöldum í eitthvað, en ég mæti ferskur í næstu göngu og þá nýgiftur og fínn.
Hvar eru menn eins og Stefnir og Freyr?
Var að tala við Stefni, hann er að vinna
og þú Haffi?
Það er nú ekkert nauðsynlegt að fara upp á topp (eða hvað?)
þannig að þeir sem eru meiddir geta komið, rölt upp eina litla brekku og farið svo heim.
kem ekki enn meidur og er enn að vinna,
Djöfulsins snilld takk fyrir mig