Ég heyrði eitt sinn á tal tveggja manna sem höfðu gengið Esjuna. Annar hafði mun minni reynslu af fjallgöngum en hinn og talaði um hvað það væri gaman að ganga á alvöru fjöll. Sá reyndi hváði við og sagði um hæl. “Esjan er ekkert fjall. Esjan er bara hrúga,” með slíkum yfirlætistón að forsætisráðherrann myndi jafnvel skammast sín.
Já drengir mínir. Esjan var gengin/hlaupin í kvöld af níu fílefldum karlmönnum og einum hundi. Allir komust alla leið en á misjöfnum hraða þó. Um 10 mínútur skildu að þá fyrstu og síðustu upp en eitthvað lengra var á milli manna á niðurleiðinni, þar sem krossbandamenn drógust heldur afturúr. Veðrið var stórkostlegt og tilfinningin að rita nafn sitt í gestabókina unaðsleg.
Þessir mættu: Ásgeir fjallageit, Hjörvar, Hróar, Ottó, tíkin Íla, Baldur, Villi, Haffi, Viktor Gústi. Ég held að þeir sem mættu hafið sem ekki mættuð misstuð af miklu. Hér eru nokkrar myndir úr þessari góðu ferð en ég held að allir geti vottað um það að Esjan er engin hrúga. Esjan er helvíti stórt fjall.
Við fengum góðan mann til að smella nokkrum myndum af þeim sem komnir voru.

Örskömmu síðar sást í kollinn á Ottó:

Hann fagnaði vel og innilega:

Orð fá ekki lýst þeirri andlegu fróun sem fólst í því að komast á toppinn:

Menn léku við hvurn sinn fingur:

Veðrið var dásamlegt. Uppi var nánast logn og glampandi sólskin var alla leið:

Útsýnið var ásættanlegt:

Kv. Baldur
Takk fyrir mig snillingar, við vorum flottir á niðurleiðinni bara 30 mín að hlaupa niður
Djöfulli eruð þið segir…..ég reyndi þetta einu sinni í neyð í rigningu og þoku á ættarfóti þar sem öllum var sagt að klífa þessa hrúgu sem reyndist snarbratt og endalaust langt helvítis fjall! Þess ber að geta að ég var aðeins 16 ára og þungur á mér.heh Ánægðastur með Otta
Djöfull mössuðum við þetta. Forseti heilsuklúbbs Metró, (Hrói) þarf endilega að skipuleggja aðra svona ferð.
Kílóin fuku af í gær.
kv.
Gústi.
“Ég held að þeir sem mættu hafið sem ekki mættuð misstuð af miklu. ”
Ég ekki skilja íslenska.
En já, ég get svo svarið það að ég hef nákvæmlega ENGA stjórn á bífunum svona í morgunsárið.
Já þetta var snilld, er strax farinn að skipuleggja næstu ferð, eftir 2 vikur ca
Annars minni ég þá metrómenn sem komnir eru í prógram á mælingar í kvöld klukkan 21 og þeir sem vilja fá kynningu á vörunum og prógramminu eru velkomnir.
Kv. Heilsu Hrói
ég vil fá að sá “erótísku myndirnar” sem ég hef heimildir fyrir að teknar hafi verið á tindinum en ekki hafa litið dagsins ljós.ef vel er að gáð á 3ju neðstu myndinni sést að ásgeir er að laga besefann á sér til í brókinni, greinilega enn með hann harðann eftir myndatökuna..
Kjafti Viktor.
Sælir, Hrói hvaða mælingu og prógram ertu að tala um ? Ég hefði nú viljað fara á esjuna en ég bara komst ekki… var að sjá radiohead á hróaskeldu