
Skitum upp á bak í dag. Vorum alltof fáir miðað við formið og vantaði alltof marga lykilmenn. Þeir áttu alla háa bolta á miðjunni og yfirspiluðu okkur á löngum köflum. Eyfi átt samt skot í stöng í stöðunni 3-2 fimm mín fyrir leikslok. Áttum alveg spretti í leiknum en gátum ekki skít þess á milli. Hefðum getað fengið á okkur tíu mörk. Hengdum haus og flestir búnir á því. Fleiri leikir en æfingar kann ekki góðri lukku að stýra. Ömurlegt að þurfa að blása af æfingu í hverri viku vegna manneklu. Lokastaðan 4-2 tap. Ég átti skítaleik hefði getað komið fyrir allavega tvö mörk. Skítaleikur og engin stemmning. Kiddi, Finnur og Gústi stóðu uppúr að mínu mati. Eflaust einhverjir ósammála.
Baldur
Væri rosalega gott að losna við þessa mynd af síðunni. Þori varla að spyrja hvar þú hafir náð í hana Baldur….
af Fylkisvellinum held ég.
Úff.
Hverjir skoruðu okkar mörk?
myndin er svaðaleg. En kanski viðeigandi, veit ekki.
Kiddi og Raggi.
Ég kem í leikinn á sunnudaginn, við tökum þetta bara þá!!! Er í töluvert betra formi en ég var í í bikarleiknum =D
Þetta er ekki viðunnandi láttu þessa mynd hverfa takk .
Já við verðum að mæta fleiri bæði á æfingar og í leiki það sást best í gær , þeir voru með stóran hóp og voru duglegir við að skipta inn freskum mönnum .
Ég vill minna menn á sumarið í fyrra, þá mættum við liðum sem höfðu ekki marga skiptimenn og við lögðum þau með því að hafa ferska menn ( og það marga) á bekknum. Þetta er ekki flókið.
það eru fáir í þessari deild sem eru í topp formi.
Það þýðir ekkert að svekkja sig á þessu heldur safna liði.