Metróliðar öttu kappi við lið FC Dragon í gærkvöldi. Skemmst er frá því að segja að við töpuðum þeim leik 1-2.
Ýmis batamerki voru á Metrómönnum frá seinustu 2 leikjum, en dugði það þó ekki til. Nú þarf að girða almennilega í brók og vinna þessa leiki sem eftir eru, ef ekki á illa að fara.
Við náðum yfirhöndinni þegar ca. 10-15 mínútur voru liðnar af leiknum. Boltinn gekk manna á milli upp hægri vænginn, þar til Kjartan fékk boltann um miðjan þeirra vallarhelming, tók á þeirra manni, þangað til hann var tæklaður niður inni í vítateig, og réttilega dæmd vítaspyrna. Dragonliðar mölduðu í móinn, og töldu brotið hafa verið fyrir utan teiginn, en það sá hver sem vildi að hann var allavega 1 meter fyrir innan. Hjörvar kláraði svo vítaspyrnuna og við leiddum 1-0. Um 10-15 mínútum síðar náðu þeir að jafna leikinn, eftir að boltinn barst frá vinstri, og eftir klafs barst boltinn í markið og staðan 1-1 í hálfleik.
Í seinni hálfleik fengum við þónokkur tækifæri til að skora mörk en þess í stað fengum við á okkur mark, skipti sem mér þykja miður góð. Enn og aftur sést gífurlegur munur á liðininu til hins verra þegar við missum út miðjumennina okkar, en í gær meiddust þeir Hjörvar og Andri, og því Kjartan aðeins eini hreinræktaði miðjupósturinn okkar sem spilaði þorrann af leiknum. Ég held að munurinn á liðinu okkar í sumar og í fyrra sé akkurat það að í fyrra vorum við alltaf með 3 sterka miðjumenn í öllum leikjum.
Ég ætla ekki að eyða mikið fleiri orðum í þennan leik, við náðum ekki að klára færin, og áttum við því ekki skilið að fá nein stig úr honum.
Nú þurfum við að girða í brók, mæta á æfingar, rífa upp stemninguna og gera gott úr þessum leikjum sem við eigum eftir. Æfingin skapar meistarann, og hefur verið fátt um slíka drætti í sumar, æfingar blásnar af hvað eftir annað og mikið stemningsleysi háir liðinu eins og er. Nú þurfum við bara að rífa þetta upp, og ekki seinna en í næsta leik! Æfingar á þriðjudaginn og fimmtudaginn, og ég býst við öllum leikfærum á þær. Hrói kemur með tilkynningu um næstu æfingu seinna í dag. Annað hvort verður það fótbolti á þriðjudaginn við Egils klukkan 21:00 eða fjallaganga ef veður leyfir.