Við mættum velstemmdu liði Vatnalilja á Framvellinum í gær, við vorum mjög vængbrotnir þar sem stór hluti liðsins sá sér ekki fært að mæta til leiks og vorum við 13 þegar flautað var til leiks og Baldur kom síðan þegar hann var búinn að vinna. Njörður mætti til að vera á bekknum enda átt við meiðsli að stríða en varð að spila allan leikinn vegna manneklu og er skemmst frá því að segja að hann átti stórleik.
Byrjunarlið:
Gústi
Villi Finnur Víðir Hrói
Njörður
Kobbi Hemmi Raggi Viktor
Kiddi
Bekkur:
Otto
Ásgeir
Baldur
Við lögðum upp með að verjast og fá ekki mark á okkur, og reyna að finna Njörð eða Kidda í fætur og byggja sóknir okkar á því. Við byrjuðum leikinn vel og fór hann fyrstu 5 mín fram á vallarhelmingi andstæðinganna og var boltinn að fljóta vel á milli manna. En Vatnaliljurnar komust meira inn í leikinn og ég held að eftir hornspyrnu og mikið klafs í teignum þar sem okkur tókst ekki að koma boltanum út úr vörninni að boltinn féll fyrir fæturnar á einum Liljumanni og hann þrumaði honum inn frá markteig, skítamark og meigum við vera ákveðnari í þessa bolta í okkar teig. Seinna mark þeirra í fyrri hálfleik verður höfundur að taka á sig en ég hefði á að hreinsa boltann burtu en reyndi frekar að skýla sendingu frá þeim og ætlaði að láta boltann fara útaf en leikmaður þeirra vann boltann vel af mér og sendi fyrir og mark. Þeir fengu síðan nokkur hálffæri fyrir hlé en ekkert sem að Gústa var í vandræðum með. Við sköpuðum okkur enginn dauðafæri í fyrri hálfleik en fengum nokkrar hættulegar aukaspyrnur og horn. Ein ákvörðun dómarans í fyrri hálfl. var þó skrýtin þvi hann dæmdi bakhrindingu á eina liljuna fyrir að hrinda Kidda sem stóð 2 metra inní teig en hann dæmdi aukaspyrnu meter fyrir utan ![]()
Seinni hálfleikur var mikil barátta og gekk boltinn liða á milli og skiptust þau a að hafa boltann á þess að skapa sér einhver dauðafæri. Kiddi hélt áfram að djöflast í varnarmönnunum allan leikinn og áttu þeir í mesta basli með kallinn en hann átti stórleik að vanda.
Þegar um 10 mín voru eftir var staðan 2-0 og mikil barátta í gangi, það var þá sem að góður markvörður liljumanna fór í skógarferð út í Kidda og vann boltann, boltinn barst út á Ragga sem sendi fyrir markmannslaust markið og þar kom Grjótnespungurinn Kobbi og vippaði yfir varnarmennina sem voru komnir á línuna gott mark. Stuttu síðar fékk Kiddi sendingu fram að vítateig og prjónaði hann sig í gegn og jafnaði leikinn, frábært mark hjá honum. Það voru síðan um 2 mín eftir þegar Kiddi fekk boltann á miðjum vallarhelmingi þeirra og tætti vörnina í sig komst einn í gegn og var felldur fyrir utan vítateig og sé sem gerði það fékk rautt en bjargaði sennilega stigi fyrir þá.
Frábær karakter hjá liðinu að koma til baka og jafna leikinn og er þetta eitthvað sem að við byggjum á í næstu leikjum. Allir stóðu sig vel og verður enginn tekinn sérstaklega fyrir en vil þó minnast á þátt Ásgeirs og Baldurs í þessum leik, en Ásgeir var meiddur en kom til að gefa mönnum 5 mín hvíldir í leiknum og Baldur kom beint úr vinnu og tók mikilvægar mínútur og mættu margir sem eru í þessum hópi taka þá til fyrirmyndar.
Þökkum Vatnalijunum fyrir fínann leik og eru þeir eitt skemmtilegasta liðið sem við höfum spilað við í sumar.
Annað mál, leikmannamál. Það er ljóst að margir í þessum hópi verða að fara að taka sig saman í andlitinu og fara að ákveða hvort þeir ætla að vera með eða ekki. það eru 3 leikir eftir og ætlum við að vinna þá. En þetta er farið að verða frekar þreytandi hvað fáir mæta á æfingar og hvað fáir eru að láta vita á síðunni. Við fórum af stað með stórann hóp í sumar en mætingin hefur verið rosalega slök og margir sem voru í hópnum varla sést í sumar og lítið vitað um hvað þeir ætla að gera. Þetta er hundleiðinlegt fyrir þessa sem eru að reyna að vera í þessu af einhverjum krafti og það er alltaf sami hópurinn. Nú væri bara fínt ef að menn sem sögðust í byrjun sumars ætla að vera með fari að láta vita hvað þeir ætla að gera því að það er alveg spurning um að fjölga í hópum um 3-5 til að ná í lið á æfingar og leiki. Nokkrir hafa látið vita að þeir yrðu mikið uppteknir eins og t.d Danni en við reiknum með honum í síðustu 3.
Koma svo drengir reynum að rífa þetta upp og látið endilega vita ef að þið hafið ekki tíma eða áhuga til að vera með og þá getum við fengið aðra sem vilja vera með, en ekki þykjast ætla vera með og mæta aldrei það er bara lélegt.
Og annað mál við erum með vefsíðu til að tjá okkur um æfingar, leiki og aðra hluti og það er fáranlegt að það þurfi alltaf að senda út sms til að menn drullist í tölvuna og kommenti.
Metrokveðjur Hrói
Góður pistill Hrói og fínn leikur hjá liðinu. Hrói, Baldur og Viktor eiga hrós skilið fyrir seiglu og utanumhald liðsins í sumar. Ég er algjörlega sammála Hróa um mætingu og þátttöku manna í sumar, búið að vera hálf dapurt. En engu að síður verið mjög gaman að spila með þeim kjarna sem hefur mætt. Miðað við hópinn okkar núna og síðasta sumar þá tel ég okkur vera sterkari núna á leikmannalistanum en árangurinn er miklu verri. Að sjálfsögðu eru menn í þessu að hæfilegu kæruleysi þar sem þetta er utandeildin, en það er alveg ljóst að það er töluvert meira gaman að vera í toppbaráttu og getað spilað ágætis fótbolta. Persónulega finnst mér ekki mjög gaman að spila fótbolta ef ég ræð ekkert við boltan og get ekkert hlaupið. Það þarf ekki mikið til að halda sér í þokkalegu formi og æfingu. Líðan manna og ánægjan af fótboltanum verður miklu meiri ef menn fíla sig vel og eru í þokkalegu standi.
Það hafa einnig mikil meiðsli sett okkur útaf laginu í sumar, ásamt nokkrum forföllum í byrjun sumars, en það eitt og sér er ekki nóg til að kalla fram lélega mætingu.
Afsakanir eins og “ég er að fara á KR-leikinn” eða “ég er að spila golf” finnst mér bara lélegar fyrir að mæta ekki á æfingar, því það vita allir að æfingar eru á þriðjudögum og fimmtudögum klukkan níu, og það á ekki að þurfa að inna menn eftir svörum. Þegar menn skrá sig í fótbolta yfir sumarið, þá er ætlast til að menn mæti þegar menn mögulega geta, því við höfum ekkert að gera með mannskap sem vill ekki spila fótbolta.
Við höfum ekki spilað æfingu á hálfum stórum velli núna í örugglega einn og hálfan mánuð vegna manneklu, og leikformið og árangurinn er nákvæmlega eftir því.
Rífum þetta nú upp og reynum að hafa gaman af þessum leikjum sem eftir eru.
Sektarsjóðurinn hlýtur að vera orðinn rosalegur.
Sektarsjóður já. Ég er viss um að ef hann hefði verið settur á laggirnar stæði lítið eftir af mánaðarlaunum sumra í hópnum.
Þakka Hróa og Nirði fyrir þeirra orð í minn garð. Vil þó benda á að Villi keyrði úr Grímsnesinu í gær til að ná í leikinn. Þar var hann með fjölskyldunni í bústað og verður alla þessa viku. Hann keyrði aftur austur strax eftir leik og á hrós skilið. Þriggja barna faðir með forgangsröðina á hreinu.
Sælir, ég er algjörlega sammála þessum pistli, og veit að ég ásamt öðrum hef ekki verið sá duglegasti að mæta uppá síðkastið. En ég vil benda á ástæðuna: Ég mætti á hverja einustu æfingu í vetur og vor ásamt því að æfa mikið aukalega líka og hélt að metnaðurinn væri að gera betur en í fyrra. Ég stakk hvað eftir annað uppá að við myndum hlaupa saman aukalega eftir æfingar en það var aldrei nokkur maður til í það. Svo þegar tímabilið byrjar þá hætta margir lykilmenn að mæta, flestir í engu formi og leikirnir hjá okkur að sjálfsögðu eftir því. Það varð til þess að þetta varð hundleiðinlegt (að mínu mati) og með því fór áhuginn hjá mér. og þegar svo er þá eyðir maður tímanum frekar í eitthvað annað áhugamál því við hjótum allir að vera í þessu til þess að hafa gaman af því…
Góður Pistill…..en góð komment uuuuhhhhh NEI (jú jú nokkur).
Ég er nokkuð viss um að “ég er að fara í golf” setningin eigi við mig.
Sektarsjóðs pælingin eigi vði mig og mína mánaðarhýru, en sem betur fer er ég líka á kennaralaunum og á fyrir þessu!!!!!!!!
En að öllu gamni slepptu þá minni ég á það að í vor þegar við vorum að fara af stað með þetta á fullu að þá voru engar fyrirfram ákveðnar æfingar og var ég iðulega oft að fá sms á 5 holu að það væri æfing framundan, sem ég væntanlega missti af. Eftir því sem á leið sumarið reyndi ég að vera með en formleysi mitt gerði það að verkum að ég hafði ekkert gaman að þessu þegar ég gat hlaupið minna en KOBBI frændi. Og þá sökkti ég mér bara meira í golfið. Það kann vel að vera að Viktori finnist það léleg afsökun að vera í golfi en það er nú bara þannig að á þessum tímapunkti var áhuginn bara meiri fyrir golfið (þó svo að hann skilji það ekki) og ætlaði ég ekki að hætta við 18 holu hring einhversstaðar úti á landi ef það var gott veður vegna þess að það átti að vera æfing hjá Metró kl 9 um kvöldið, einfalt frá mínum bæjardyrum séð.
Freyr bendir réttilega á það að við hljótum að vera í þessu til að hafa gaman af (í bland við sigurvilja) og það er einmitt það sem gerðist hjá mér, ég fór að hafa meira gaman af öðru og sinnti því meir og sé ekki aftir því (einni utnalandsferð, inneign í bónus og einni atvinnu sony myndavél ríkari) og fgj farin niður um 6 heila. Einhvern vegin heillaði þetta bara meira en að vera feitur í fótbolta.
En einnig hafði ég látið vita þó ekki hér á síðunni að ég væri ekki viss með mig í sumar og væri sennilega bara off það sem eftir væri sumars, en gæti þó skotið upp kollinum í lokin, en það ætti ekki að gera ráð fyrir mér.
kv.
Bjartmar
Rétt er það Bjartmar þú varst búinn að láta vita af því að þú yrðir lítið með. Ég er hjartanlega sammála ykkur með að við erum í þessu til að hafa gaman af, en það er ekki gaman fyrir þessa sem eru að reyna að vera í þessu ef að menn nenni ekki að mæta af því að það gengur ekki vel, þá eiga þeir sem ekki hafa meiri áhuga en það að láta vita af því að þeir muni lítið eða ekki vera með í sumar af því að þeir eru komnir með meiri áhuga á öðru ( eins og Bjartmar var búinn að gera )og þá er hægt að leita að öðrum mönnum í þær stöður. Jújú við erum búnir að lenda í miklum meiðslum og jújú menn verða nú að taka þetta passlega alvarlega í utandeildinni, en þetta er orðið meira en gott af hinu góða, erum að minnsta kosti búnir að blása af 5-6 æfingar vegna manneklu, og á síðustu æfingar hafa verið að mæta 8-10 manns lélegt það.
Kv. Hrói
Bjartmar ég efast um að orðin hér að ofan séu beind til einhvers eins eða tveggja í liðinu. Hópurinn samanstendur af 26 manns samkvæmt lista hér að ofan. Það listi yfir þá sem hafa borgað og ætluðu að vera með í sumar.
Við höfum þurft að blása sex æfingar af í sumar, frá því mótið hófst. Samkvæmt lauslegum útreikningum er það þriðjungur æfinga. Hinar æfingarnar höfum við verið 8 til 12. Einni æfingu man ég eftir þar sem við vorum 16 eða 18. Hún var í Fagralundi fyrir margt löngu.
Einn maður til eða frá skiptir litlu máli en við getum ekki vænst þess að vinna leiki þegar aðeins þriðjungur leikmannahópsins mætir á æfingar, rétt til að geta spilað á litlum sparkvelli.
Þó að byrjunin á móti hafi reynst okkur erfið finnst mér rétta svarið við því ekki felast í því að finna sér annað áhugamál. En það er auðvitað ekki hægt að knýja einn né neinn til að hafa áhuga á þessu. Áhuginn þarf að koma frá hverjum og einum. Ég held að það sé hægt að túlka orð okkar Hróa og Viktors á þann veg að okkur þykir leitt að áhuginn sé ekki meiri. Hjá fáeinum gengur Metró fyrir öðrum áhugamálum en hjá fjölmörgum er annað mun ofar á baugi. Þar er ekki við einstaklinga að sakast en þetta hefur þó komið illa við þá sem vilja verja tíma í boltann.
Vonandi getum við samt sem áður lært af þessu sumri. Á næsta ári verður vonandi hægt að fá fasta æfingatíma fyrr. Það þarf að krefja menn um ákveðnari svör og jafnvel taka inn einhverja sem hafa brennandi áhuga. Þá verðum við vonandi heppnari með meiðsli en nærri lætur að 5-6 lykilmenn hafi verið meiddir í hverjum leik í sumar.
Er ekki stutt í golfmótið ?
Núna er stutt í verslunarmannahelgi og menn að fara í frí, spurning um hvort menn vilji æfingu í kvöld, hægt að fara á grasið í grafarholti??
Til er ég.
ég segi pass
ég segi líka pass. Aldrei að vita hvað maður gerir svo eftir verslunarmannahelgi
til er ég
Sleppum bara æfingu og menn hittast bara eftir verslunarmannahelgi.
Drekkið ykkur ekki í hel
drekkið ykkur í hel
drekktu þér í hyl
baldur ég þig ekki skil, hví þú ert með…æi nenni þessu ekki
Hamingju með afmælið Bjammi.
takk ottó
Golfmótið er á dagskrá fljótlega eftir versló.
Finnum dag sem allir (flestir) komast á.
kv.
Gústi.
ég kemst ekki í golfmótið…..ég verð í golfi
góður;) en ég skipti um lið í dag og ætla að spila með þeim það sem eftir er tímabils. en ég vona að ykkur gangi vel, og svo sjáum við til með næsta sumar.
ha?
ok gangi þér vel í nýju liði
Hvaða lið fórstu í ??
hvað er að gerast??
maður er meiddur í rúman mán.. en mætir samt, maður rétt skreppur til útlanda og allt er í upplausn þegar maður kemur heim.
Í fyrra og fyrri ár mættu margir vegna þess að við höfðum gaman af því að hittast og sparka í tuðru. ekki skemmdi frábær árangur í fyrra fyrir. en ef hann gerði það að verkum menn fara bara í fílu eftir fyrsta tapleik þá er það nú miður.
nú er það bara að sjá hvort golfmót geri eitthvað fyrir mannsskapinn en ég svo sannarlega vona það!!!!!
ég er ekkert í fýlu, og er og verð alltaf metrómaður:) ég var bara beðinn um að spila í úrsitakeppninni og mig langaði það. Enda hafa nokkrir hjá okkur sem hafa verið duglegastir að mæta lítið fengið að spila og því er bara um að gera að þeir fái að spila meira
Freyzer….ekki fórstu í Sunderland? Hélt að þeir hefðu keypt Diouf!!