Sælir drengir og velkomnir aftur heim þið sem fóruð eitthvað um helgina.
Nú fer að síga á seinni hlutann af þessu tímabili og eigum við 3 leiki eftir sem að við ætlum að vinna að sjálfsögðu.
Golfmótið verður auglýst á næstu dögum svo fylgist vel með.
Annars er spurning um að hafa smá bolta í kvöld fyrir þá sem treysta sér og eigum við ekki að segjaað æfingin verði í grafarholti á grasvellinum.
Kv. Hrói
Já og Freyr hefur ákveðið að skipta um lið, við óskum honum góðs gengis með nýju liði og þökkum fyrir okkur.
hvaða lið er Freyr farinn í?
veit ekki
ég fór í khumo, en einsog ég sagði, ég ætla bara að spila með þeim í úrslitakeppninni, en metró verður áfram mitt lið
kemst ekki í dag, hælmeiðsli enn að plaga mig….
Þú kemur samt um hæl þegar þú getur er það ekki
mæti, en Kjartan kemur ekki.
eg mæti og hjörvar
Mæti líka
Það er líka eins gott að þú verður áfram í metró Freyr, annars skuldaru ansi marga hringi á Korpunni
Er kominn úr sumarfríi, mæti
já það myndi klárlega setja mig á hausinn! en ég er alveg til í æfingu í kvöld, sé ég velkominn;)
Auðvitað, allir metromenn eru velkomnir
Ég mæti
Ég mæti. Villi er á Vestfjörðum.
Fínt mál eru ekki allir klárir hvar þetta er???
Já og það er komin hugmynd um að golfmótið verði 22 eða 23 ágúst hvað segja menn um það
mæti
Kemst ekki er í sumarfríi í Hólminum, kem aftur í bæinn núna um helgina.
Klukkan 9 venju samkvæmt?
jamm
Líst vel á þetta hjá Freyzernum og vona svo sannarlega að honum takist að verða fyrsti Metrómaðurinn til að vinna titil.
Ég mæti.
Ég kem ekki í kvöld, er með smá eymsli í kálfa eftir æfingar helgarinnar.
Mæti
Það eru 11 búnir að melda sig. bara þrusu mæting, enda verða menn að ná af sér verslunnarmannahelginni.
sorry strákar veit a þetta er stuttur fyrirvari en ég kem ekki, fæ ekki pössun eins og ég var búinn að gera ráð fyrir…