Sælir drengir og takk fyrir góða æfingu í gær. Á æfingunni var ákveðið að fækka æfingum niður í eina á viku og reiknum við með að æfa í grafarholtinu, spurning um hvort að við eigum ekki að vera þá á fimmtudögum þar sem leikir eru oftast á mánudögum og sunnudögum.
Annars er næsti hittingur bara á mánudagskvöld en þá eigum við leik við Hómer á Ásvöllum klukkan 21 og vonandi náum við góðum hóp í þessi lokaátök og klárum magurt sumar með stæl.
Stefnt er að hafa golfmótið 22. ágúst og er sá tími flottur, passar vel á milli leikja, svo er spurning um að menn fari að leggja höfuð í bleyti fyrir einhver verðlaun á golfmótinu og fara að hugsa til lokahófs, spurning um að stofna einhverja lokhófsnefnd???? hvað segja menn um þetta. Endilega kommenta eitthvað á þetta.
Kv. Hrói
Ég mæti í leikinn
Ég mæti einnig.
Veit ekki hvort ég næ því. Verð á kvöldvakt.
Ég mæti
Ég mæti
ég er slappur í hælnum, en get spilað eins og í síðasta leik. Tippla bara á tánum….
Lýst vel á golfmótið, við hljótum að geta fundið einhver vegleg verðlaun.
Lokahófið verður að vera flott eins og síðast, og um að gera að fá góða menn í nefndina. Ég er alveg til í það aftur, en ætla ekki lofa mér strax, sé til hvernig staðan verður á mér í ágúst lok eða september.
Ég mæti í leikinn og golfmót.
Ég mæti í leik og golfmót
Mæti í leikinn og gólfmót
Get mætt í leik, en formið er alls ekki gott eftir mikla fyllerístörn
11 mölvanir
Mæti í leikinn.
Ég mæti í leikinn og Golfmót.
Mæti
býst við að láta sjá mig í leiknum, samt er ekkert öruggt í þessum heimi.
það má svo sannarlega búast við mér í bæði.
Breyttar aðstæður.
Er til í allt, án Villa.
Verðum við þá að fórna Villa fyrir þig ???
Ætlar Villi ekki að koma?
Mæti í bæði,
Eins og aðstæður eru í dag.
Mæti.
Tilnefni Sævar og Freyr í verðlaunanefnd
Lokahófið ætti að geta orðið nokkuð gott í ár vegna digurra sjóða. Ætli það sé ekki best að athuga það bara fljótlega eftir golfmót?
Væri ekki gaman að fara á undan í paintball, adrenalíngarðinn eða eitthvað svolieðis. goldfinger eða eitthvað.?
bara pæling.
ÞArf að afboða mig í leik… tognun í ökkla…
mæti í leik.
Mæti í leikinn ef ég verð ekki að vinna
Ég mæti í leikinn, spurning hvort ég verði orðinn 100%, fékk nagla upp í fótinn um daginn.
Það þarf auðvitað ekki að minna metrómenn á svona lagað en ekki gleyma gelinu í kvöld. Það verður hópmyndataka.
Ég mæti þó svo Baldur hafi ætlað að losna við samkeppni frá mér um bakvarðarstöðuna…
Þetta er rétti andinn Villi, það kemur leynigestur í leikinn gamall metrómaður og mun jkoma með takkaskónna með sér
Þeir sem fylgjast með borgarmálunum áttuðu sig á því að “Til í allt, án Villa” er vísun í frægustu sms-skilaboð íslandssögunnar.
Þið hinir getið túlkað þetta eftir eigin höfði.
Getir einhver haft samb. við Freysa og fengið treyjuna hans lánaða fyrir Ragga???
Líst vel á þetta, stefnir í metþáttöku í kvöld
Baldur, brandarinn missir marks ef það þarf að útskýra afhverju hann er fyndinn. Annað hvort fatta menn eða ekki.
Nákvæmlega. Ég þráaðist þess vegna við að leiðrétta menn sem túlkuðu þetta þannig að Villi myndi ekki mæta í leikinn. Ótrúlegt
Ég fattaði hann Baldur og fannst hann mjög fyndinn:)
Hvenær er næsta æfing
spurning hvort menn vilja æfingu í kvöld eða á morgun
kemst ekki í kvöld en kemst á morgun