Sælir drengir ég er nu ekki í neinu sérstöku stuði til að skrifa um síðasta leik en hér kemur það.
Það var góð mæting á leikinn sennilega sú besta í sumar og er það flott. Leikurinn byrjaði rólega og voru þeir meira með boltann en sköpuðu sér engin hættuleg færi. Það var svo um miðjan fyrri hálfleik að Viktor skoraði eftir frábæra rispu hjá Ragga upp kantinn og vorum við komnir verðskuldað yfir 1-0 og þannig var staðan í hálfleik. Eitthvað komum við rólegir inn í seinni hálfleikinn því ekkert gekk að ná upp spili, en eftir hreinsun út ur vörninni nelgdi Viktor boltanum fram á Kiddi sem að brunaði í gegn og skoraði. Síðan kom skrýtinn kafli hjá okkur svona eins og við værum á því að leikurinn væri búinn engin barátta og menn ragir í boltann, þeir minnka muninn með góðu skoti utan af velli og jafna síðan leikinn eftir að við náum ekki að hreinsa burtu úr vörninni sennilega 10 markið sem að við fáum þannig á okkur í sumar. Eftir þetta fengum við nokkur góð færi en náðum ekki að klára leikinn og 2-2 jafntefli staðreynd.
Dómarinn átti mjög slakan leik og leyfði Hómermönnum að komst upp með ótrúlega grófan leik og voru sumar tæklingarnar hjá þeim stórhættulegar og tilgangurinn var eingöngu að reyna að meiða andstæðinginn, þetta er grófasta liðið sem við höfum mætt það er á hreinu. Ég held að þeir ættu aðeins að hugsa sinn gang fáranleg spilamennska hjá sumum í þessu liði.
En annars ekki meira um þetta.
Æfing á miðvikudag á grasinu í Holtinu klukkan 20,30 því það dimmir fyrr
Kv. Hrói
Viðbót:
Ég smellti af nokkrum myndum í upphafi leiks en það reyndist fljótt of dimmt til að mynda. Hópmyndatakan bíður betri og bjartari tíma. Allar myndir sem ég tók reyndust hreyfðar. Ákvað þó að setja inn smá sýnishorn. Kv. Baldur
Byrjum á Gústa sem var með stæla (út af myndavélinni) og splæsti í stórbrotna markvörslu:

Hjörvar barðist vel í leiknum og fórnaði sér fyrir liðið. Djöfullegri augu hef ég ekki séð.

Hemmi eða Alexander Petersson fékk dauðafæri en brást bogalistin:

Pjáturkarlinn mætti og varð gríðarlega vonsvikinn þegar Hómer jöfnuðu. Fór skælandi heim:

Víðir bauð upp á skemmtilegan svip:

Ég var afar í góðu sambandi við þá sem byrjuðu inná. Þeir voru sem hundar í bandi:

Gott feik hjá Ásgeiri. Þóttist ætla að hreinsa fram en setti boltann faglega í innkast:

Atli mætti ekki. Var að jafna sig eftir stífa (beinstífa) þjálfun á Spáni. Jón Þormar náði þessari munúðarfullu mynd af kauða:

Kv. Baldur
Grafarholt 20:30 á morgun.
Mæti.
Ég mæti ekki meiddur
ég mæti.
Mæti
Sé til hvort ég get verið með =(
Ég mæti.
Hrói……ætlarðu ekki að setja mig á Herbalife….veitir ekkert af eftir að hafa þurft að elta Jónsa í áti og drykkju á Spáni….
vertu í bandi.
Koma svo strákar. Klára þetta sumar með stæl!
Reyni að mæta, er að fá tengdó í heimsókn. Veit ekki hvað þau verða lengi.
ég mæti
kemst ekki á æfinguna…
…en verðum við ekki að vera með í fantasy league!!!!!
Já Óskar á ég verð í bandi og ég styð fantasy
Ég stefni á að mæta, ef allt gengur að óskum
Mæti
Ég mæti
Mæti
Var að koma úr minniháttar lýtaraðgerð, (það eru allir svo fagrir í Metróliðinu þannig að maður er að reyna að bæta útlit sitt aðeins)
og er þvi í ekki standi til að mæta
mæti ekki verð að vinna.
Sævar fær ekki útivistarleyfi frá konunni og kemst ekki.
Mæti ekki, er í stykkishólmi.
mæti.
mæti. er þetta grasvöllur eða spark?
Smá misskilningur hjá mér, mætti upp í Egilshöll.
er ekkert að frétta af fantasy league
á ekki taka annað tímabil?????
codeinn í metró deildina
1047712-188389
gangi ykkur vel