Í gærkvöldi öttu Metrómenn kappi við Áreitni, og höfðu betur 6-3. Þessi sigur var kærkominn, enda langt síðan við unnum leik eftir brösótt sumar.
Snemma í leiknum sást hvert stefndi, og eftir 10 mínútna leik eða svo prjónaði Kjartan sig í gegnum hálfa vörn Áreitnis og skaut síðan af stuttu færi framhjá markverði þeirra og staðan því 1-0. Glæsilegt mark, það fyrsta af nokkrum.
Annað markið kom stuttu síðar og um það sá Kiddi, sem hefur verið áskrifandi að mörkum hjá okkur í sumar. Eftir að hafa leikið vörn þeirra grátt, setti hann boltann laust og örugglega í hornið.
Þriðja markið var mjög áþekkt því fyrsta, þar sem nú var komið að Hjörvari að prjóna sig í gegnum hálfa vörnina og hamra síðan boltann í netið. Staðan í hálfleik, 3-0 var síst of stór, enda fengum við urmul af færum til að setja fleiri mörk á þá. Áreitnismenn aftur á móti fengu lítið meira en hálf-færi sem Gústi átti ekki í neinum teljandi vandræðum með og því hálfleikstölur síst of stórar.
Fljótlega eftir að dómarinn flautaði á seinni hálfleik, skoruðum við fjórða markið og var það kyntröllið hann Jakob sem setti þetta stórglæsilega mark. Það var meira að segja það stórglæsilegt, að það hafði viðkomu í varnarmanni þeirra Áreitnismanna áður en boltinn lá í netinu, við mikinn fögnuð Metrómanna á hliðarlínunni.
Næst var komið að þætti annars Jakobs á vellinum, eða þeim sem sá um flautuna. Sá ágæti maður hefur undarlega tilhneigingu til að reyna að jafna liðin inná vellinum hverju sinni, og var gærkvöldið engin undantekning. Með skömmu millibili dæmdi hann á okkur ekki eina heldur tvær vítaspyrnur, sem voru algerlega út í Hróa (Jónsson.) Þá fyrri dæmdi hann á Villa, eftir baráttu um stungu inn fyrir vörnina, þar sem Villi renndi sér “klín” í boltann, og kom honum frá. Mjög óskiljanlegur dómur, og lét Kobbi dómari hafa eftir sér að Villi togaði manninn niður í leiðinni. Gústi sá allavega um að réttlætinu væri fullnægt með því að verja spyrnuna stórglæsilega.
Seinni vítaspyrnuna dæmdi hann á Ottó, eftir klafs inni í teig þar sem að hann og sóknarmaður flæktust saman við fyrirgjöf inní teig. Engin skildi þarna neitt í neinu, nema Ottó, sem krafðist þess að fá gult spjald fyrir vikið, og reif sig úr bolnum til að innsigla það. Skammt er frá því að segja að honum varð við þeirri bón og í þetta skiptið tókst Gústa ekki jafnvel upp, og fengu þeir sitt fyrsta mark, úr annarri vítaspyrnutilraun, á silfurfati. Í kjölfarið fengu þeir aðra sókn skömmu síðar og settu inn mark eftir gegnumbrot frá hægri og þeir farnir að eygja á möguleika í leiknum.
Næstu mínútur sóttu bæði lið, en fimmta markið okkar kom eftir hornspyrnu eða fyrirgjöf úr horninu, þar sem Finnur, sem spilaði á miðjunni í dag, sveiflaði fætinum í átt að boltanum, með púra varnartilburðum að koma boltanum frá sér með öllum tiltækum ráðum, og sjanghæaði boltann með hnénu og inn fór boltinn. Sannur varnarmaður þarna á ferð. Í kjölfarið fá Áreitnismenn svo þriðja markið sitt eftir eitthvað fát á vörninni okkar.
Sigurinn var svo innsiglaður ca. 10 mínútum fyrir leikslok þegar Hjörvar sendi stungu inn fyrir vörn Áreitnismanna, þar sem Kiddi hljóp örugglega af sér varnarmann og skoraði sitt annað mark í leiknum og alveg örugglega sitt 12. eða 13. mark í sumar. Lokastaðan því 6-3 fyrir okkur, og síst af stór þar sem við fengum helling af færum sem við áttum að klára.
Allt liðið var að hafa gaman af boltanum í gær og spiluðu eftir því. Talandinn var mikið betri en hann hefur verið í sumar, og ljóst að við höfum átt heilmikið inni eftir frekar dapurt sumar. Spilamennskan hjá okkur í sumar hefur einkennst af því að spila vel á móti toppliðunum án þess að fá neitt út úr þeim, og svo illa á móti “miðlungsliðunum.” Segi “miðlungsliðunum” innan gæsalappa vegna þess að þau geta á góðum degi unnið toppliðin nokkuð örugglega.
Framundan eru samt góðir tímar, golfmótið verður næstu helgi, og hvet menn til að skoða þráðinn hér fyrir neðan fyrir það. Einnig var Danni að tala um að halda pókermót fljótlega, sem ég held að sé alveg fín hugmynd. Svo auðvitað er einn leikur eftir, en hann er á móti SÁÁ næstkomandi þriðjudag.
Hver er annars þessi Danni?
Það vantar alveg inn í þetta þegar Sæver reyndi að skora með því að skjóta boltanum í hausinn á sér……
Já, vegna skyldleika kaus höfundur að sleppa þeirri umræðu af einskærum kærleik. Og líka af því að höfundur þarf því miður að umbera þennan umrædda leikmann löngu eftir daga fótboltaferilsins, og þarf því að veigra sér undan því að niðurlægja þennan bjána.
Fjandinn að missa af þessum leik. Þetta hefur verið mikil skemmtun. Hvað mættu margir?
Glæsilegt drengir glæsilegt. Nú er bara að fjölmenna í golfið. Síðan er leikur í gangi þessa dagana, en það er leikurinn hvar er Danni og fær sá sem finnur hann óvænt verðlaun
Góð skemmtun í gær, alveg brililant.
Hrói, ætli ég verði ekki að hirða þessi verðlaun. Er búinn að hitta Danna tvisvar á stuttum tíma, nú síðast í gærdag. Og þá var hann næstum pottþéttur að mæta í leikinn.
Næst þegar hann kemur skal ég rota hann og hringja í þig.
Hann Daníel á Dröngum, hann er dauður það er ljótan.
Í hjarta mínu hlakkaði ég til að skjót’ann.
Ég ætla að lýsa mig sigurvegara í Hvar-er-Danni, og upplýsa ykkur í leiðinni að kappinn stendur nú við Fjölnisvöllinn, og stýrir þeim gulu.
Hver eru verðlaunin?
Koss frá Skúla
Óli þór er til +í að mæta á golfmót en þarf að vita klukkan hvað
þegiðu Skúli!!!!! og Viktor þú ert líka kominn á hættuslóðir!!
hehehe
Skúli! Verðlaunaafhending! Ég vil fá verðlaunin mín!
Þegar þú borgar bjórinn karlinn minn
Ég tók ekki þátt í HM-leiknum bavíaninn þinn! Ég reif bara kjaft
Skúli! Ég vil fá verðlaunin mín! borga borga borga!
Hmm, ég gæti hafa verið að rugla eitthvað þarna í pistlinum… Hvort skoraði Kjartan eða Kiddi fyrsta markið?
Skv. þessu skoraði Kiddi fyrsta, ég gæti hafa ruglast eitthvað, elliglöpin sjáiði til.
Ok en ég hélt að þetta hefði verið EM. Ég skal gefa þér koss næst þegar ég hitti þig
Ég er búinn að taka frá rástíma fyrir föstudaginn og fer fyrsti hópur út kl. 18:00.
Við verðum að vera mættir tímanlega þannig að ég held að það sé ágætt að hafa mætingu kl: 17:30.
Svo þarf ég væntanlega ekki að minna metrómenn á það að snyrtilegur klæðnaður er æskilegur og gallabuxur og íþróttabuxur eru bannaðar.
kv.
Gústi.
Glæsilegt ég hendi inn pósti um þetta
á einhver sixpense til að lána mér?