Sælir drengir þá er komið að því. Hið frábæra golfmót Metro verður á föstudaginn og fer fyrsti ráshópur af stað klukkan 18.00 og er mæting því ekki seinna en 17.30. Gott væri ef að einhver gæti mætt klukkan 17.00 til að hjalpa Gusta við að raða i lið. Snyrtilegur klæðnaður er skylda. SMÁ BREYTING MÓTSGJALD ER 1500. kr OG FER UPPÍ VEITINGAR OG VERÐLAUN.
Þessir hafa skráð sig til leiks, ef einhverjar breytingar hafa orðið vinsamlegast látið vita.
Atli Sveinn
Ágúst Vallarstjóri
Baldur
Danni
Haffi
Hjörvar
Hrói
Kobbi
Kiddi (last years winner)
Stefnir
Sævar
Viktor
Víðir
Halldór Svavar
Óli þór
Óskar Atli
Glæsileg mæting, þeir sem eiga þess kost að koma með einhver verðlaun endilega gera það, bara skemmtilegar að hafa einhver verðlaun.
Hendi hérna inn nokkrum myndum til að rifja upp síðasta mót, látum myndirnar tala sínu máli.





Sem sjálfkjörinn formaður mótanefnar Golfklúbbsins Metro þá verður forgjöf fyrir komandi mót ákveðin með tilliti til árangurs frá því í fyrra!
Kristinn Vilhjálmur fær til að mynda ekki eins háa forgjöf og í fyrra (nema að hann lendi með mér í liði)
Á ég að reyna að fá eitthvað tilboð á bjór í veitingasölunni líkt og í fyrra?
Gott væri ef ég yrði í seinasta hópi sem færi af stað verð alveg á síðustu metrunum að ná þessu en reyni hvað ég get að mæta
Ég skal koma um fimmleytið og velja mér meðspilara
“Reyni hvað ég get að mæta.”
Höfum heyrt þennan áður Daníel.
Segirðu þetta líka á leikdegi þegar Fjölnir á leik?
Ég held að þér sé alveg óhætt að semja við barinn Gústi,það verður örugglega alveg nóg af mönnum til að drekka bjór…
Ég kemst því miður ekki r, en ég hitti ykkur jafnvel í bænum!!!!!
Svo varðandi forgjöf ofl. þá má Kobbi fá mun hærri forgjöf en í fyrra því hann gat EKKERT og ef hann hefði verið með rétta fgj á hefðum við unnið en ekki forgjafasvindlararnir Kristinn og Freyr sem gerir harða atlögu að landsliðssæti þessa dagana.
Núnú… bæðurnir Ef og Hefði mættir til leiks.
Bjammi minn. EF þú HEFÐIR verið betri í fyrra þá hefðiru örugglega átt séns….
Ég kemst ekki í gólfið. Góða skemmtun.
Er bleikt aftur?
Óli kemur en verður á seinni metrunum, fínt að setja hann í síðasta holl, jú klárlega bleikt þema í kvöld, menn hljóta að fá einhver bónusstig fyrir það. Minni menn einnig á að reyna að skrapa saman í einhver verðlaun verður skemmtilegra þannig, Baldur þú mætir með myndavél og smellir nokkrum.
Vil benda mönnum á að ég ef aldrei spilað gólf áður, væri ekki slæmt að fá einhver góðan með sér :d
Iss.. höfum heyrt þennan áður Víðir.
Kemst ekki klukkan 5. Þarf víst að reyna að skila einhverju.
enda var aldrei stefnt á að mæta 5 álfurinn þinn.
Álfurinn var nú samt búinn að lýsa því yfir að hann ætlaði að mæta þá.
Dvergurinn þinn.
Ég á geðveikt flotta bleikköflótta skyrtu ef einhverjum vantar bleikt.
Án spaugs.
Gústi hafði sérstaklega óskað eftir því að einhver mætti klukkan fimm til að aðstoða hann við skipulagningu, stubburinn þinn.