Jæja þá er þessu boltasumri lokið og er ljóst að við getum gert betur en þetta og það verður bara gert næsta sumar.
Golfmótið var algjör snilld og gaman var að sjá gamla metrómenn og velunnara metró spreyta sig með kylfurnar, enginn mætti með myndavél þannig að því miður Hnikarr. Skemmst er að segja að Eyjólfur og Víðir unnu mótið í ár og til hamingju með það.
Næst á dagskrá er síðan að slútta þessu almennilega með lokahófi og er spurning um hvort einhverjir bjóði sig fram í að sjáum það, veit að Kiddi er til :), þeir ákveða dagsetningu og dagskrá.
Svo er líka spurning hvort menn vilji halda áfram að æfa í vetur og þá þarf að fara að hafa hraðar hendur í að fá einhversstaðar tíma, kannski Danni getið sofið hjá einhverjum í Egilshöll
Eru einhverjir sem vilja æfa í vetur eða eru einhverjir sem vilja bara byrja um áramót????
Spjöllum um þetta.
Kv. Hrói
sælir minni menn einnig á fantasy leikinn en þar er allt komið á fullt……
http://www.fantasy.premierleague.com
styttist í 3 umferð og staðan er svona.
Team Manager GW Total
1 Yonex Magnús Helgason 51 98
2 Séra Baldur Baldur Gudmundsson 43 94
3 FC KVJ Kristinn Jóhannsson 44 92
4 Bakkó City Hafþór Elíasson 39 88
5 Forza Hroi Hróar Jónsson 38 88
6 FC Over jakob baldursson 42 85
7 Gondar FC Eyjólfur Kolbeins 37 85
8 Skulinn Skúli Sigurðsson 40 82
9 Skratli FC Oskar Runarsson 37 80
10 Bakkó City Stefnir Elíasson 37 79
11 FC Besefi Hjörvar Jónsson 45 74
12 AC BC Atli Sveinn Jónsson 44 72
13 Gunners FC Daniel Jóhannsson 24 71
14 Heggem Bjartmar Dadason 35 58
15 mun-rust-essu utd Saevar Strom 48 48
16 Starks Ágúst Jensson 40 40
Sýnist að stefnan verði tekin á að taka smá hvíld í haust, og byrja svo af krafti um áramótin.
veit bara að ég ætla að æfa af krafti í vetur og koma mér í gott form í eitt skipti fyrir öll. Búinn að vera ömurlegur í sumar.
Já Viktor það er rétt, ég kunni bara ekki við að segja það en þú ert búinn að vera ömulegur
Neinei
Ég hugsa að megnið af okkur finnist við hafa verið töluvert frá okkar besta í sumar, ég veit allavega að ég var það.
Ég skil vel þá sem vilja taka sér break frá þessu fram að áramótum, en ég myndi nú ekki slá hendinni á móti metróbolta 1x í viku, þó ekki væri nema í sporthúsinu eða risanum eða eitthvað slíkt. Þriðjudagskvöld og helgar eru laus hjá mér eins og þetta lítur út núna.
Sko ég býst við að ég haldi áfram í fríi fram að áramótum allavega en svo mætti jafnvel skoða metróbolta í innanhússboltanum
Ég væri til í að æfa 1x í viku til áramóta. Hef mætt á allar æfingar í sumar nema tvær. Fór samt ekki nema svona 10-12 sinnum í fótbolta í allt sumar !
Hlakka satt best að segja til að geta farið að sprikla í fótbolta reglulega.
Ég set inn hópmyndina við tækifæri.
Baldur
ég bara skl ekki af hverju þú fékst ekki stóriddarakrossinn:)
Það væri nú gott ef að fleiri myndu svara
ég væri alveg til í að vera í smá bolta þar sem maður komst ekki mikið í sumar vegna anna:-)
Ég er alltaf til í bolta. Mér heyrðist samt á mannskapnum vera tími á smá hvíld.
Ég skal athuga í næstu viku hvort það sé áhugi á æfingu. SMS’in fá að fjúka.
Ég er til í hvíld fram að áramótum
Er til í að taka bolta smá bolta
Ég verð ekki með í bolta í vetur þar sem aðrar íþróttir taka minn tíma. Verð klár næsta vor í góðu standi.
sama hér, kem í blússandi gír að vori