Sælir drengir og takk fyrir góða æfingu í gær. Á æfingunni var ákveðið að fækka æfingum niður í eina á viku og reiknum við með að æfa í grafarholtinu, spurning um hvort að við eigum ekki að vera þá á fimmtudögum þar sem leikir eru oftast á mánudögum og sunnudögum.
Annars er næsti hittingur bara á mánudagskvöld en þá eigum við leik við Hómer á Ásvöllum klukkan 21 og vonandi náum við góðum hóp í þessi lokaátök og klárum magurt sumar með stæl.
Stefnt er að hafa golfmótið 22. ágúst og er sá tími flottur, passar vel á milli leikja, svo er spurning um að menn fari að leggja höfuð í bleyti fyrir einhver verðlaun á golfmótinu og fara að hugsa til lokahófs, spurning um að stofna einhverja lokhófsnefnd???? hvað segja menn um þetta. Endilega kommenta eitthvað á þetta.
Kv. Hrói
Skrifað í 1 | 37 ummæli »
Sælir drengir og velkomnir aftur heim þið sem fóruð eitthvað um helgina.
Nú fer að síga á seinni hlutann af þessu tímabili og eigum við 3 leiki eftir sem að við ætlum að vinna að sjálfsögðu.
Golfmótið verður auglýst á næstu dögum svo fylgist vel með.
Annars er spurning um að hafa smá bolta í kvöld fyrir þá sem treysta sér og eigum við ekki að segjaað æfingin verði í grafarholti á grasvellinum.
Kv. Hrói
Já og Freyr hefur ákveðið að skipta um lið, við óskum honum góðs gengis með nýju liði og þökkum fyrir okkur.
Skrifað í 1 | 25 ummæli »
Við mættum velstemmdu liði Vatnalilja á Framvellinum í gær, við vorum mjög vængbrotnir þar sem stór hluti liðsins sá sér ekki fært að mæta til leiks og vorum við 13 þegar flautað var til leiks og Baldur kom síðan þegar hann var búinn að vinna. Njörður mætti til að vera á bekknum enda átt við meiðsli að stríða en varð að spila allan leikinn vegna manneklu og er skemmst frá því að segja að hann átti stórleik.
Byrjunarlið:
Gústi
Villi Finnur Víðir Hrói
Njörður
Kobbi Hemmi Raggi Viktor
Kiddi
Bekkur:
Otto
Ásgeir
Baldur
Við lögðum upp með að verjast og fá ekki mark á okkur, og reyna að finna Njörð eða Kidda í fætur og byggja sóknir okkar á því. Við byrjuðum leikinn vel og fór hann fyrstu 5 mín fram á vallarhelmingi andstæðinganna og var boltinn að fljóta vel á milli manna. En Vatnaliljurnar komust meira inn í leikinn og ég held að eftir hornspyrnu og mikið klafs í teignum þar sem okkur tókst ekki að koma boltanum út úr vörninni að boltinn féll fyrir fæturnar á einum Liljumanni og hann þrumaði honum inn frá markteig, skítamark og meigum við vera ákveðnari í þessa bolta í okkar teig. Seinna mark þeirra í fyrri hálfleik verður höfundur að taka á sig en ég hefði á að hreinsa boltann burtu en reyndi frekar að skýla sendingu frá þeim og ætlaði að láta boltann fara útaf en leikmaður þeirra vann boltann vel af mér og sendi fyrir og mark. Þeir fengu síðan nokkur hálffæri fyrir hlé en ekkert sem að Gústa var í vandræðum með. Við sköpuðum okkur enginn dauðafæri í fyrri hálfleik en fengum nokkrar hættulegar aukaspyrnur og horn. Ein ákvörðun dómarans í fyrri hálfl. var þó skrýtin þvi hann dæmdi bakhrindingu á eina liljuna fyrir að hrinda Kidda sem stóð 2 metra inní teig en hann dæmdi aukaspyrnu meter fyrir utan 
Seinni hálfleikur var mikil barátta og gekk boltinn liða á milli og skiptust þau a að hafa boltann á þess að skapa sér einhver dauðafæri. Kiddi hélt áfram að djöflast í varnarmönnunum allan leikinn og áttu þeir í mesta basli með kallinn en hann átti stórleik að vanda.
Þegar um 10 mín voru eftir var staðan 2-0 og mikil barátta í gangi, það var þá sem að góður markvörður liljumanna fór í skógarferð út í Kidda og vann boltann, boltinn barst út á Ragga sem sendi fyrir markmannslaust markið og þar kom Grjótnespungurinn Kobbi og vippaði yfir varnarmennina sem voru komnir á línuna gott mark. Stuttu síðar fékk Kiddi sendingu fram að vítateig og prjónaði hann sig í gegn og jafnaði leikinn, frábært mark hjá honum. Það voru síðan um 2 mín eftir þegar Kiddi fekk boltann á miðjum vallarhelmingi þeirra og tætti vörnina í sig komst einn í gegn og var felldur fyrir utan vítateig og sé sem gerði það fékk rautt en bjargaði sennilega stigi fyrir þá.
Frábær karakter hjá liðinu að koma til baka og jafna leikinn og er þetta eitthvað sem að við byggjum á í næstu leikjum. Allir stóðu sig vel og verður enginn tekinn sérstaklega fyrir en vil þó minnast á þátt Ásgeirs og Baldurs í þessum leik, en Ásgeir var meiddur en kom til að gefa mönnum 5 mín hvíldir í leiknum og Baldur kom beint úr vinnu og tók mikilvægar mínútur og mættu margir sem eru í þessum hópi taka þá til fyrirmyndar.
Þökkum Vatnalijunum fyrir fínann leik og eru þeir eitt skemmtilegasta liðið sem við höfum spilað við í sumar.
Annað mál, leikmannamál. Það er ljóst að margir í þessum hópi verða að fara að taka sig saman í andlitinu og fara að ákveða hvort þeir ætla að vera með eða ekki. það eru 3 leikir eftir og ætlum við að vinna þá. En þetta er farið að verða frekar þreytandi hvað fáir mæta á æfingar og hvað fáir eru að láta vita á síðunni. Við fórum af stað með stórann hóp í sumar en mætingin hefur verið rosalega slök og margir sem voru í hópnum varla sést í sumar og lítið vitað um hvað þeir ætla að gera. Þetta er hundleiðinlegt fyrir þessa sem eru að reyna að vera í þessu af einhverjum krafti og það er alltaf sami hópurinn. Nú væri bara fínt ef að menn sem sögðust í byrjun sumars ætla að vera með fari að láta vita hvað þeir ætla að gera því að það er alveg spurning um að fjölga í hópum um 3-5 til að ná í lið á æfingar og leiki. Nokkrir hafa látið vita að þeir yrðu mikið uppteknir eins og t.d Danni en við reiknum með honum í síðustu 3.
Koma svo drengir reynum að rífa þetta upp og látið endilega vita ef að þið hafið ekki tíma eða áhuga til að vera með og þá getum við fengið aðra sem vilja vera með, en ekki þykjast ætla vera með og mæta aldrei það er bara lélegt.
Og annað mál við erum með vefsíðu til að tjá okkur um æfingar, leiki og aðra hluti og það er fáranlegt að það þurfi alltaf að senda út sms til að menn drullist í tölvuna og kommenti.
Metrokveðjur Hrói
Skrifað í 1, Annað, Félagið, Leikir | 28 ummæli »
Næsti leikur er við Vatnaliljur á sunnudaginn, sem slógu okkur naumlega út úr bikarnum. Leikurinn hefst klukkan 19:30 á Framvelli, MÆTING Í SEINASTA LAGI 18:45! Meldið ykkur hér fyrir neðan.
Mæta:
Gústi
Finnur
Hemmi
Kobbi
Hrói
Kiddi
Njörður
Ottó
Raggi
Viktor
Villi
Víðir
Mæta ef þeir verða komnir í bæinn/Seint:
Baldur
Óli
Stefnir
Kjartan
Mæta ekki eða spila ekki:
Andri
Atli
Danni
Hjörvar
Haffi
Sævar
Freysi
Skrifað í Leikir | 24 ummæli »
Sælir drengir næsta æfing klukkan 21 í Fagralundi og vonast ég eftir toppmætingu, en geri þær lágmarkskröfur um að menn meldi sig inná síðuna um hvort þeir komast eða ekki…
Næsti leikur er síðan á sunnudag klukkan 19.30 á Framvelli, taka þann tíma frá. Vatnaliljur eru mótherjar okkar, Þeir slógu okkur út úr bikarnum og nú er komið að okkur að fara að reyna að gera eitthvað.
Síðan minni ég þá metrómenn sem eiga að koma í 3 mælingu á mætingu heima hjá mér á milli 20-21, þeir sem vilja kynna sér þetta eru einnig velkomnir, látið mig samt vita svo að ég geti gert ráðstafanir.
Kv. Hrói
Skrifað í Annað, Æfing | 28 ummæli »
Sælir drengir, vegna veðurs þá frestum við gönguferðinni í dag og stefnum á bolta við Egilshöll klukkan 21.
Gerum góða mætingu
Kv Hroi
Skrifað í Æfing | 16 ummæli »
Metróliðar öttu kappi við lið FC Dragon í gærkvöldi. Skemmst er frá því að segja að við töpuðum þeim leik 1-2.
Ýmis batamerki voru á Metrómönnum frá seinustu 2 leikjum, en dugði það þó ekki til. Nú þarf að girða almennilega í brók og vinna þessa leiki sem eftir eru, ef ekki á illa að fara.
Við náðum yfirhöndinni þegar ca. 10-15 mínútur voru liðnar af leiknum. Boltinn gekk manna á milli upp hægri vænginn, þar til Kjartan fékk boltann um miðjan þeirra vallarhelming, tók á þeirra manni, þangað til hann var tæklaður niður inni í vítateig, og réttilega dæmd vítaspyrna. Dragonliðar mölduðu í móinn, og töldu brotið hafa verið fyrir utan teiginn, en það sá hver sem vildi að hann var allavega 1 meter fyrir innan. Hjörvar kláraði svo vítaspyrnuna og við leiddum 1-0. Um 10-15 mínútum síðar náðu þeir að jafna leikinn, eftir að boltinn barst frá vinstri, og eftir klafs barst boltinn í markið og staðan 1-1 í hálfleik.
Í seinni hálfleik fengum við þónokkur tækifæri til að skora mörk en þess í stað fengum við á okkur mark, skipti sem mér þykja miður góð. Enn og aftur sést gífurlegur munur á liðininu til hins verra þegar við missum út miðjumennina okkar, en í gær meiddust þeir Hjörvar og Andri, og því Kjartan aðeins eini hreinræktaði miðjupósturinn okkar sem spilaði þorrann af leiknum. Ég held að munurinn á liðinu okkar í sumar og í fyrra sé akkurat það að í fyrra vorum við alltaf með 3 sterka miðjumenn í öllum leikjum.
Ég ætla ekki að eyða mikið fleiri orðum í þennan leik, við náðum ekki að klára færin, og áttum við því ekki skilið að fá nein stig úr honum.
Nú þurfum við að girða í brók, mæta á æfingar, rífa upp stemninguna og gera gott úr þessum leikjum sem við eigum eftir. Æfingin skapar meistarann, og hefur verið fátt um slíka drætti í sumar, æfingar blásnar af hvað eftir annað og mikið stemningsleysi háir liðinu eins og er. Nú þurfum við bara að rífa þetta upp, og ekki seinna en í næsta leik! Æfingar á þriðjudaginn og fimmtudaginn, og ég býst við öllum leikfærum á þær. Hrói kemur með tilkynningu um næstu æfingu seinna í dag. Annað hvort verður það fótbolti á þriðjudaginn við Egils klukkan 21:00 eða fjallaganga ef veður leyfir.
Skrifað í Leikir | Engin ummæli »
Sælir drengir þá er það næsti leikur og er hann við Drekana á Fylkisvelli klukkan 21 á sunnudagskvöld.
Þeir töpuðu fyrir okkur í bikarnum og koma örugglega dýrvitlausir í þennan leik til að hefna fyrir það, þannig að við verðum að fara að mæta með eitthvert stuð í þessa leiki.
Ljóst er að það mun vanta einhverja í þennan leik bæði vegna meiðsla og ferðalaga.
Hverjir komast?
Mæta:
Andri
Atli
Ásgeir
Finnur
Freysi
Gústi
Hjörvar
Hemmi
Hrói
Kjartan
Ottó
Raggi
Viktor
Villi
Víðir
ekki:
Baldur
Bjammi
Danni
Haffi
Kobbi
Kiddi
Njörður
Stefnir
Sævar
Skrifað í Leikir | 18 ummæli »
Sælir drengir, var að koma heim úr fríi og sé það að það þarf að fara að rífa ykkur upp af rassgatinu 
Æfing á fimmtudag klukkan 21 í Fagralundi og ekkert væl um meiðsli og ristilbólgur, ef menn eru meiddir þá mæta menn bara og taka létt skokk í fossvogsdalnum, gerir engum gott að sitja bara heima og gera ekkert ;).
Annað mál þeir sem að tóku þátt í bjórleiknum eiga væntanlega eftir að borga kippur, koma með kippur á næstu æfingar og láta Skúla og Víði að mig minnir fá bjórinn ( þeir meiga að vísu ekkert við því ).
Næsti leikur er á sunnudag og er við Drekana held ég og í vikunni eftir leikinn verður næsti viðburður heilsuklúbbsins, það verður auglýst síðar.
Tökum nú á því drengir og rífum stemminguna upp.
Kv. Heilsu Hrói
Mæta:
Atli
Freysi
Hemmi
Hjörvar
Hrói
Ottó
Raggi
Sævar
Viktor
Villi
Ekki: (meiddir/úti á landi/vinna)
Ásgeir
Baldur
Bjammi
Gústi
Haffi
Kiddi
Kjartan
Njörður
Skúli
Stefnir
Víðir (mætir í kvöld og hleypur með okkur)
ekki svarað:
Andri
Danni
Kobbi
Skrifað í Annað, Æfing | 18 ummæli »
Æfing klukkan níu í kvöld. Kúkurinn að baki. Vonandi geta allir mætt sem ekki eru meiddir. Endanleg staðsetning liggur ekki fyrir en Egils er líklegur staður.
Meldið ykkur hér:
Engin bolti í kvöld vegna lélegrar þáttöku.
Skrifað í 1 | 14 ummæli »