Feed on
Posts
Ummæli

Jæja

Sælir drengir, var að koma heim úr fríi og sé það að það þarf að fara að rífa ykkur upp af rassgatinu :)
Æfing á fimmtudag klukkan 21 í Fagralundi og ekkert væl um meiðsli og ristilbólgur, ef menn eru meiddir þá mæta menn bara og taka létt skokk í fossvogsdalnum, gerir engum gott að sitja bara heima og gera ekkert ;).

Annað mál þeir sem að tóku þátt í bjórleiknum eiga væntanlega eftir að borga kippur, koma með kippur á næstu æfingar og láta Skúla og Víði að mig minnir fá bjórinn ( þeir meiga að vísu ekkert við því ).

Næsti leikur er á sunnudag og er við Drekana held ég og í vikunni eftir leikinn verður næsti viðburður heilsuklúbbsins, það verður auglýst síðar.

Tökum nú á því drengir og rífum stemminguna upp.

Kv. Heilsu Hrói

Mæta:
Atli
Freysi
Hemmi
Hjörvar
Hrói
Ottó
Raggi
Sævar
Viktor
Villi

Ekki: (meiddir/úti á landi/vinna)
Ásgeir
Baldur
Bjammi
Gústi
Haffi
Kiddi
Kjartan
Njörður
Skúli
Stefnir
Víðir (mætir í kvöld og hleypur með okkur)

ekki svarað:
Andri
Danni
Kobbi

Æfing

Æfing klukkan níu í kvöld. Kúkurinn að baki. Vonandi geta allir mætt sem ekki eru meiddir. Endanleg staðsetning liggur ekki fyrir en Egils er líklegur staður.

Meldið ykkur hér:

Engin bolti í kvöld vegna lélegrar þáttöku.

MEÐ KÚKINN Í BUXUNUM

kúkur

Skitum upp á bak í dag. Vorum alltof fáir miðað við formið og vantaði alltof marga lykilmenn. Þeir áttu alla háa bolta á miðjunni og yfirspiluðu okkur á löngum köflum. Eyfi átt samt skot í stöng í stöðunni 3-2 fimm mín fyrir leikslok. Áttum alveg spretti í leiknum en gátum ekki skít þess á milli. Hefðum getað fengið á okkur tíu mörk. Hengdum haus og flestir búnir á því. Fleiri leikir en æfingar kann ekki góðri lukku að stýra. Ömurlegt að þurfa að blása af æfingu í hverri viku vegna manneklu. Lokastaðan 4-2 tap. Ég átti skítaleik hefði getað komið fyrir allavega tvö mörk. Skítaleikur og engin stemmning. Kiddi, Finnur og Gústi stóðu uppúr að mínu mati. Eflaust einhverjir ósammála.
Baldur

Það er ljóst að mikil verða forföllin á sunnudaginn. Einhverjir eru meiddir og nokkrir fastamenn út á landi! Það liggur því fyrir að við þurfum á öllum sem við mögulega getum fengið í leikinn á sunnudaginn. Meldið ykkur hér og endilega látið vita. Eins og rætt var eftir síðasta leik er nú ætlunin að mæta klukkutíma fyrir leik og hita allir upp saman! Mæting 18:30 á Fylkisvöll og hana nú.

Mæta:
Baldur
Eyjólfur
Finnur
Gústi
Haffi
Hemmi
Kjartan
Kiddi
Kobbi
Raggi
Stebbi
Stefnir
Viktor
Víðir (tæpur)

Ekki:
Andri
Atli Sveinn
Ásgeir
Danni
Freysi
Hrói
Hjörvar
Njörður
Skúli
Sævar
Villi

Ekki svarað:
Bjammi

Æfing í kvöld

Æfing í Fagralundi klukkan 21:00 í kvöld.  Meldið ykkur hérna.  Sendi út SMS’in í hádeginu.

ATH! Æfing fellur niður vegna ónógrar þáttöku.

ER ESJAN HRÚGA?

Ég heyrði eitt sinn á tal tveggja manna sem höfðu gengið Esjuna. Annar hafði mun minni reynslu af fjallgöngum en hinn og talaði um hvað það væri gaman að ganga á alvöru fjöll. Sá reyndi hváði við og sagði um hæl. “Esjan er ekkert fjall. Esjan er bara hrúga,” með slíkum yfirlætistón að forsætisráðherrann myndi jafnvel skammast sín.

Já drengir mínir. Esjan var gengin/hlaupin í kvöld af níu fílefldum karlmönnum og einum hundi. Allir komust alla leið en á misjöfnum hraða þó. Um 10 mínútur skildu að þá fyrstu og síðustu upp en eitthvað lengra var á milli manna á niðurleiðinni, þar sem krossbandamenn drógust heldur afturúr. Veðrið var stórkostlegt og tilfinningin að rita nafn sitt í gestabókina unaðsleg.

Þessir mættu: Ásgeir fjallageit, Hjörvar, Hróar, Ottó, tíkin Íla, Baldur, Villi, Haffi, Viktor Gústi. Ég held að þeir sem mættu hafið sem ekki mættuð misstuð af miklu. Hér eru nokkrar myndir úr þessari góðu ferð en ég held að allir geti vottað um það að Esjan er engin hrúga. Esjan er helvíti stórt fjall.

Við fengum góðan mann til að smella nokkrum myndum af þeim sem komnir voru.
hópurinn

Örskömmu síðar sást í kollinn á Ottó:
ottó

Hann fagnaði vel og innilega:
hann fagnaði vel

Orð fá ekki lýst þeirri andlegu fróun sem fólst í því að komast á toppinn:
hrói

Menn léku við hvurn sinn fingur:
fróun

Veðrið var dásamlegt. Uppi var nánast logn og glampandi sólskin var alla leið:
dkle

Útsýnið var ásættanlegt:
útsýni

Kv. Baldur

ESJAN Í KVÖLD !

Æfing í kvöld. Gengið á Esjuna. Höfum gott af því allir sem einn. Mæting við Esjuna klukkan 19.00 - stundvíslega !!

Það er algjört lágmark að ná í 11 manna lið upp á topp. Engin afsökun. Við erum einn hópur og eigum að sjá sóma okkar í því að mæta á svona viðburði.

Þessir mæta:

Hrói
Hjörvar
Baldur
Villi
Gústi
Ásgeir
Viktor
Ottó
Haffi

LÉTUM Í MINNI POKANN

markið

Jæja, 1-0 tap var það að þessu sinni. Markið kom eftir hornspyrnuna hér að ofan. Við erum búnir að tapa of mörgum leikjum í röð. Eins og í síðasta leik varð léleg byrjun okkur að falli. Hrói benti réttilega á að hluta skýringarinnar má rekja til þess að við mætum seint og illa á æfingar og í leiki. Ég kom beint úr vinnunni, korteri fyrir leik og þá voru bara 9 komnir og enn færri búnir að hita upp. Það var líka eins og við manninn mælt að Vatnaliljur voru komnir yfir eftir fáeinar mínútur, enda við kaldir og illa samstilltir að mér fannst. Markið kom eftir hornspyrnu.

En til að gera langa sögu stutta þá voru þeir betri en við í fyrri hálfleik. Þeir áttu þrjú ágæt færi en við eitt og að því leytinu til fannst mér forysta þeirra verðskulduð í hálfleik. Í þeim síðari spýttum við heldur betur í lófana og yfirspiluðum þá. Miðjan var þá sérstaklega sterk og svo var hægri bakvörðurinn gríðarlega þéttur (fyrir) í 20 mínútur í þeim seinni. ;)

Þrátt fyrir ótrúleg marktækifæri tókst okkur ekki að skora. Til þess fengum við heldur betur færin. Kiddi var þrisvar kominn í afar vænlega stöðu þegar brotið var á honum en dapur dómari leiksins setti strax í upphafi þá línu að flauta hvorki á svæsnar bakhrindingar né önnur brot. Hann dæmdi þó jafn undarlega beggja megin og er það fyrir mestu, þó við hefðum sannarlega átt að fá fleiri vítaspyrnur en þeir.

Við sóttum nokkuð vel í síðari hálfleik og sprengdum þá, að mér fannst. Þeir áttu svo einar tvær mjög hættulegar sóknir í blálokin en lokastaðan var 1-0. Grátlegt tap en eins og einn þeirra komst að orði hefði þessi leikur getað farið á báða vegu. Þeir gera það samt sjaldnast.

Þessir byrjðuðu: Gústi, Víðir, Villi, Hrói, Ásgeir, Haffi, Viktor, Óli, Hjörvar, Njörður og Kiddi.
Þessir komu inná: Sævar, Ottó, Baldur, Finnur og Atli Sveinn.

Venju samkvæmt smellti ég af nokkrum myndum. Ottó greip vélina líka í seinni:
Við áttum fín færi í leiknum:
færi

Hér skall hurð nærri hælum við mark þeirra:
hurð nærri hælum

Er þetta flugvél?
villi

“Á ég að vera að taka þetta innkast,” gæti hann verið að hugsa:
innkast

Ottó lét ekki sitt eftir liggja:
ottó

Atli kom mjög sterkur inn í seinni. Átti hættulegar sendingar og gerði vel:
atli sveinn

Ekki hér í gegn kallinn minn:
ég

Haffi átti sinn besta leik í langan tíma og var nálægt því að skora hér:
haffi

Baldur lipurtá. Gríðarlega léttur á fæti eins og hér sést:
baldur

Ég minni ALLA á Esjugöngu á morgun klukkan 19:00. Kominn tími til að hrista hópinn saman eftir dapurt gengi í undanförnum leikjum. Er það ekki?

Kv. Baldur

Bikarleikur við Vatnaliljur á morgun klukkan 19:30 á HK-velli.  Mæting tímanlega eða góðum 45 mín. fyrir leik.

Mæta:

Viktor
Gústi
Ásgeir
Hrói
Ottó
Kiddi
Villi
Sævar
Finnur
Hjörvar
Víðir
Njörður
Haffi
Óli

Bjammi?
Baldur?

Ekki:
Danni
Freysi
Hemmi
Kjartan
Raggi
Andri
Kobbi
Skúli
Stefnir

Æfing á laugardaginn.

Æfing snemma á laugardaginn eða klukkan 11:00 við Egils fyrir þá sem ætla ekki út úr bænum um helgina.  Við sjáum mætinguna, og fáum aukamenn ef til þess þarf að koma.

Það er svo leikur á mánudaginn við Vatnaliljur, sem verður meldað í þegar að því kemur.

Einnig var rætt á seinustu æfingu að tölta upp Esjuna um helgina, en það víkur fyrir leiknum á mánudeginum.  Esjugangan verður því farin í miðri næstu viku.

Meldið ykkur fyrir laugardagsæfinguna hér.

ATH:  Ekki náðist í nógu marga, þannig að boltinn dettur niður.

« Newer Posts - Older Posts »